Dugnaðarforkar
Við Kalli litli vorum duglegir í dag. Við tókum til í garðinum og fórum tvær ferðir í endurvinnsluna. Kalla fannst það rosalega gaman og var mjög hjálplegur með ruslapokana. Eina vandamálið var að honum fannst svo gaman að vera innan um gámana og draslið í endurvinnslunni að hann vildi ekki fara heim aftur svo ég þurfti að draga hann grenjandi í burtu í bæði skiptin.
Síðan fórum við félagarnir kl. 3.15 að ná í Óðinn í skólann. Hann hafði 15 mínútur til að skipta yfir í fótboltabúningin fyrir æfinguna kl. 3.30. Það er enginn búningsaðstaða þannig að þetta er allt gert undir beru lofti. Síðan var æft á grasi í klukkutíma. Ég þurfti að elta Kalla litla nokkrum sinnum inn á æfingavöllinn því hann vildi vera með. Kalli var annars bara nokkuð góður með boltann.
Óðinn var dálítið stúrinn eftir æfinguna því hann var ekki beðinn um að koma að keppa við annan skóla á sunnudaginn, en það voru margir sem ekki komust í liðið og ekkert til að skammast sín fyrir. Mér finnst þetta nú samt helvíti hart þegar svona ungir krakkar eiga í hlut, eiga ekki allir fá að vera með? Allavega að hafa A og B lið þannig að allir geti keppt. Þeir geta bara átt sig þessir labbakútar, Óðinn er í bekkjarráðinu, er rosagóður á selló, talar tvö tungumál og allar stelpurnar eru skotnar í honum....beat that suckers!
kv Kalli

1 Comments:
HA!!!!! Eru bara "sumir" sem fá að keppa. Mikið þykir mér það skrítið. Þegar Hildur æfði fótbolta þá var alltaf skipt inn á og allir fengu að reyna og vera með sama hvort þeir væru góðir eða ekki. Jamms Óðinn þú ert greinilega að spjara þig vel.
Kv, Fanney
By
Anonymous, At
Thursday, 02 February, 2006
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home