Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Thursday, January 12, 2006

Ásta (in Iceland)

Jæja það verður að segjast eins og er að við höfum verið verulega blogglöt upp á síðkastið. Það er bara myglaður janúar í gangi, allir með kvef og Kalli að enda SJÖUNDU næturvaktina sína í röð.

Ég skrapp þó til Íslands í dag, er að aðstoða Fanneyju systir með lag í Evróvision sem hún er með í forkeppninni. Á að mæta í stúdíó í fyrramálið til að taka upp nokkrar fiðlulínur.

Ég verð nú að segja eins og er að flugferðin til Íslands var nú ekki fyrir flughrædda. Við lentum í skemmtilegum vindstreng þannig að ekki var hægt að vera með neitt í glasi án þess að fá skvettur yfir sig meirihluta leiðarinnar. Það voru þarna nokkrir sem héldu í höndina á flugfreyjunum allan tíman,. Ég hallaði mér nú bara aftur í sætið og las Vouge enda sannfærð um ná ná minnst 96 ára aldri eins og amma mín Birna á Akureyri.

Mæli ekki með veðrinu á Íslandi núna, bara snjór, snjór og vindur og skafrenningur. Ekkert hægt að skreppa í notalegan göngutúr. Ég sem mætti bara á háhæluðum skóm, verð að passa mig í hálkunni á morgun. Þetta verður bara stutt stopp, fer heim aftur á morgun með kaffivélinni.

Það eina sem ég kaupi í þetta skiptið er Veislubók Hagkaups en Kalli hefur ekki hætt að nuða um súpuna góðu sem hann fékk um áramótin sem var elduð upp úr henni. H'un skal því elduð á föstudaginn, en þá fáum við góðan gest frá Edinborg í mat.
Góðar kveðjur,
Ásta

3 Comments:

  • Ég er einmitt á leið heim á laugardaginn með brauðristinni :)

    By Anonymous Anonymous, At Thursday, 12 January, 2006  

  • Úff, ég er ekki viss um að ég sé tilbúin fyrir snjó og kulda. Veturinn hérna hefur verið eins og milt vor.....kannski það breitist áður en ég fer og herðir í mig víkinginn.

    By Anonymous Anonymous, At Saturday, 14 January, 2006  

  • Á ekkert að fara að blogga meira? Engar fréttir eða fyndnar sögur?

    Kv, Fanney

    By Anonymous Anonymous, At Tuesday, 17 January, 2006  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home