Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Saturday, January 28, 2006

Hvalamál

Jæja, það fór eins og mig grunaði. Dýraverndunarsinnarnir gerðu allt hvað þeir gátu til að lengja þjáningar vesalings hvalsins sem synti upp Thames. Nokkrum sinnum leit út fyrir að hann fengi að fara yfir móðuna miklu en þá var bara bætt í. Á einum tímapunkti lét eihnver háskólamenntaður hálfviti sjá sig með ca 10 lítra garðkönnu sem hann notaði til að vökva hausinn á dýrinu. Hann hefur sjálfsagt séð sig í anda tala við fréttamenn eftir björgunina: "Ég sá að við vorum að missa hann, þá allt í einu sá ég rauða garðkönnu svona rétt út undan mér. Ég vissi undir eins hvað ég þyrfti að gera. Um leið og ég byrjaði að vökva hausinn á þessu 7000kg dýri með ca 10 lítrum á mínútu sá ég að það bara lifnaði yfir honum - ég vissi að ég hafði bjargað honum".
Það voru fleiri skemmtilegar hugmyndir. Háskólafólkið komst að því tiltölulega fljótlega, sjálfsagt eftir að hafa flett því upp í litlu vasabókinni sinni "A Short Introduction to Whales for Idiots", að hvalurinn lifði einkum á smokkfiski. Upphófust nú miklar spekúlasjónir um að henda smokkfiski til hans svo hann gæti fengið sér að borða, safnað kröftum og síðan synt hamingjusamur til vina sinna og rætt nýjustu tilnefningar til bókmenntaverðlauna Nóbels á hvalamáli. Það var því gríðarlegt áfall fyrir gáfnagengið að uppgötva að smokkfiskur lifir ekki í Thames því náttúruleg heimkinni þeirra eru í sjó sem nota bene er saltur andstætt Thames og ennfremur að hvalurinn borðar ekki dauðan smokkfisk.
Þetta gat því bara endað á einn veg. Hvalurinn dó að lokum á sérlega ómannúðlegan og kvalafullan hátt þar sem hann fékk óstjórnleg krampaköst á bökkum Thames þar til hann dó. Og af hverju var honum ekki gefin nein lyf til að auðvelda honum dauðastríðið fyrst ekki mátti taka hann af lífi? Vegna þess að það hefði getað sljóvgað hann og minnkað líkurnar á að hann tæki sprettinn aftur til sjávar. Einmitt.
Og nú er búið að kryfja dýrið og ekkert fundist að því. Með öðrum orðum, fullt af fínu kjötið farið í súginn.
Dagana á eftir mátti síðan sjá fyrirsagnir í æsifréttastíl þar sem hneikslast var á stöðumælasektum sem björgunarfólkið hafði fengið á meðan það var að bjarga hvalnum. Þetta kom mér ekki á óvart miðað við reynslu mína af breskum skrifstofublókum, ég er helst hissa á því að hvalurinn hafi ekki verið rukkaður um hafnargjöld. En þetta er nú allt að leysast. Rauða garðkannan kominn á uppboð á ebay árituð af veruleikafirrtasta fólki Bretlands. Hagnaðurinn verður síðan notaður til að framlengja dauðastríð næsta hvals sem er svo óheppinn að villast á þessar slóðir. kv Kalli

1 Comments:

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home