Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Tuesday, January 31, 2006

Fréttir af Óðni

Óðinn er alltaf að verða meira og meira upptekinn í skólanum. Hann fer í after school club tvisvar í viku til kl. 17.45, síðan er fótbolti einu sinni á viku eftir skóla og stundum sund. Núna er hann byrjaður að læra á selló. Hann fór í sinn annan tíma í gær og fékk þá selló til að taka með sér heim til að æfa sig á hverjum degi í 10 mínútur. Kennarinn er rosalega ánægður með hann enda býr Óðinn sennilega enn að því að hafa lært á fiðlu þegar hann var 4 ára.
Óðinn æfði sig með mömmu sinni í gær, hún spilaði á fiðlu og síðan hermdi Óðinn eftir henni á sellóinu. Vonandi erfði Kalli ekki tónlistargenin mín, ég gat ekki einu sinni lært á blokkflautu.
Óðinn ætlar að fá vin sinn Alexander í heimsókn á laugardaginn til að spila playstation. Svona lagað verður að plana með allavega 5 daga fyrirvara á þessum slóðum.
Nú er að styttast í 7 ára afmælið hans Óðins í júní. Afmælisveislur hér eru nánast aldrei haldnar heimavið. Þess í stað leigir fólk barnaland eða íþróttasali og kaupir alla þjónustu, nema kannski afmæliskökuna sjálfa.
Við erum að velta fyrir okkur að halda veisluna hans Óðins í líkamsræktarstöðinni okkar, Amida. Standard pakkinn þar er 15 pund á mann fyrir 90 mínútna veislu, með hot buffet, party bag per child og leikjum sem starfsmaður stöðvarinnar sér um. Síðan kemst maður ekki hjá því að velja party theme sem kostar 2 pund á haus, t.d pirates eða spiderman. Svo getur maður pantað ýmislegt aukalega eins og mini tennis eða sportsmania. Fyrir 8 ára og eldri getur maður keypt köfunarkennslu í sundlauginni fyrir 35 pund á mann aukalega, það verður að bíða þangað til á næsta ári. Meðalafmælisveisla kostar því um 300 pund; hverrar krónu virði, ekkert uppvask, tiltekt eða vesen.
Óðinn dafnar því bara mjög vel, er duglegur og vinsæll í skólanum og fær reglulega bleik ástarbréf frá stelpunum í bekknum. kv Kalli

1 Comments:

  • 300 pund.....er það ekki 600$.....VÁ er það eina sem ég get sagt um það. Man samt aldrei hvort pundið er helmingi hærra eða lægra en dollarinn. Gerði bara ráð fyrir því að svona veisla kostaði meira en 150$. Svona veislur kosta í kringum 300$ hérna.

    Kv, Fanney

    By Anonymous Anonymous, At Saturday, 04 February, 2006  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home