Með hækkandi sól....
Það er búið að vera hálfþungbúið undanfarið, segi ekki meira. Framundan er síðan kuldakast ættað frá Rússlandi. Ég var meira segja búinn að vera svo neikvæður og þungur upp á síðkastið að Ásta sendi mig til geðlæknis. Við ræddum neikvæðnina fram og til baka. Ég var nú helst á því að ég væri bara svona leiðinlegur en einhverra hluta vegna virtist ég líka uppfylla greiningarskilmerki þunglyndis. Niðurstaðan var sú að það þyrfti að lækna leiðindin með lyfjum og samtalsmeðferð.
Fyrir þá sem ekki þekkja til þunglyndislyfja þá má segja að maður geti valið um tvennt: Að vera hamingjusöm feitabolla eða getuleysingi. Ég þurfti ekki að hugsa mig lengi um og valdi getuleysið. Strákarnir eru hvort sem er smám saman að murka úr mér lífið með því að halda fyrir mér vöku og hoppa ofan á hausnum á mér þegar ég er að reyna að sofa. Ekki þörf fyrir fleiri börn að sinni.
Þrátt fyrir að hafa frestað getuleysinu með því að taka ekki lyfin mín þá líður mér nú bara miklu betur. Það var fallegt veður í dag, sól og vorlykt í loftinu og mér fannst ég ekki eins leiðinlegur og ég er búinn að vera undanfarin 10-20 ár.
Í dag fórum við meira segja í myndatöku með fjölskylduna og það var bara nokkuð skemmtilegt. Þetta var ekki svona hefðbundin myndataka þar sem maður er maður er eins og reirður kartöflupoki með bindi um hálsinn og í krónískri andnauð. Fjölskyldan mætti bara í kasúal fötum og hoppaði síðan um berfætt í stúdíóinu eins og vitleysingar með blöðrur og bolta. Ég held að niðurstaðan verði bara fín.
Annars er allt að verða vitlaust hérna í London út af einhverjun ljótum hval sem var svo vitlaus að hann synti upp Thames. Góðhjartaðir einfeldningar eru búnir að standa 24 tíma vakt til að reyna að bjarga kvikindinu. Það liggur náttúrulega í augum uppi að það ætti að senda sprengjuskutul í dýrið hið fyrsta og halda færeyska hvalasláturhátíð rétt við þinghúsið. Það væri dásamlegt. Fólk myndi koma úr öllum áttum til að fá bita úr dýrinu og ef vel viðraði væri jafnvel hægt að grilla á staðnum - sannkölluð þjóðhátíðarstemmning. Það þyrfti að vísu að breyta lögunum lítilsháttar áður en til þess kæmi, samkvæmt núgildandi lögum á drottningin alla hvali sem deyja á svæðinu.
Núna er Celebrity Big Brother í sjónvarpinu. George Galloway þingmaður fyrir Respect er að skjóta sig í fótinn nánast daglega í beinni útsendingu. Hann ætlaði að nota þáttinn til að ná til unga fólksins, en hann er rétt rúmlega fimmtugur. Þátturinn er hins vega skeinuhættur vindhönum vegna þess að þátttakendurnir eru á algjörri einangrun og því ekki hægt að breyta um taktík eftir því hvernig viðbrögðin eru. Þegar þetta er ritað hefur hann afrekað að leika kött og þykjast lepja mjólk úr lófa annars þátttakenda, leika drakúla og setja á sig hárkollu og leika Elvis. Hann er orðin á athlægi í þinginu og víðast hvar annars staðar. Þetta er sami maður og hitti Saddam Husein tvívegis á meðan hann var við völd og sagði að hann dáðist að hugrekki hans og dugnaði. Þetta er sami maður og hjólaði í bandaríska þingnefnd fyrir nokkrum mánuðum og jarðaði mann og annan með málsnilld sinni.
kv Kalli

1 Comments:
Sæl kæra fjöslkylda. Það er gott að vita að sólin sé farin að hækka hjá ykkur og lundin þá líka. Kalli er það ekki alþekkt að geðlæknar eigi við þunglyndi að stríða?? Ertu þá ekki á grænni grein? Þetta var eflaust ljótt að segja en.. sorry. Kæru vinir hafið það gott, elskið hvort annað, hmm allavega andlega ;-) kv. Eva
By
Anonymous, At
Monday, 23 January, 2006
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home