Áramót
Þá erum við komin aftur heim. Við áttum góðar stundir á Íslandi með vinum og ættingjum þótt við gætum ekki hitt alla sem við vildum. Við komum bara fljótt aftur. Á um tveimur vikum áttum við næturstað í Reykjavík, Vestmannaeyjum, Hafnarfirði og Flúðum og Ásta hafði þegar bætt Akureyri í sarpinn áður en ég kom. Okkar var alls staðar frábærlega tekið og kunnum öllum bestu þakkir fyrir.
Áramótin héldum við að Miðfelli við Flúðir. Þar borðuðum við gæs og hrossalundir og einhverja bestu súpu sem ég hef smakkað. Síðan fórum við á brennu, horfðum á skaupið og síðan var flugeldum skotið upp eins og lög gera ráð fyrir. Við fórum síðan í Sing Star þar sem ég náði þeim árangri að vera "tone deaf" og skoraði 1000 stig. Aðrir náðu fleiri stigum þótt þeir skrippu á klósettið í miðju lagi.
kv Kalli

2 Comments:
Sæl verið þið öll sömul og takk fyrir síðast. Vonandi er Kalli litli orðin betri af kvefinu og sæll yfir því að komast heim í rútínuna sína:-) Kalli stóri, djæ það er spurning hvort Ásta eða jafnvel Fanney geti ekki tekið þig í söngtíma, ja svo þú allavega hafir möguleika á jafntefli ef einhver skreppur á klóið:-) skora á þig í Sing Star við næstu Ísl. komu. Þarna sé ég mér leik á borði... að ég eigi séns;-) Hafið það glimrandi á nýju ári og sjáumst vonandi sem fyrst kæru vinir.
Kv. úr Hafnarfirði Eva Birgitta og co.
By
Anonymous, At
Thursday, 05 January, 2006
Hæ hæ kæra Londongengi. Gaman að sjá að þið eruð aftur farin að blogga.
Kær kv, Fanney
By
Anonymous, At
Thursday, 05 January, 2006
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home