Evróvision
Við strákarnir horfðum á söngvakeppnina beint í tölvunni í gær. Andlegur undirbúningur stóð yfir í marga klukkutíma. Við fórum síðan á netið 2 klukkutímum fyrir keppnina og hófumst síðan handa við að baka kókoskúlur. Við létum ekki einhverja smámuni eyðileggja fyrir okkur stemninguna eins og t.d. að við áttum hvorki haframjöl, kókos eða vanillusykur. Ég sagði Óðni að það væri allt í lagi og síðan bökuðum við þessar sérlega klístrugu og viðbjóðslegu "kókoskúlur" úr einhverskonar instant morgunverðarhaframjöli sem var ekki alveg að virka. Þetta var síðan skreytt með hvítum glassúr og einhvers konar kökuskrauti. Síðan hringdi ég nokkur símtöl til Íslands til að hvetja vini og ættingja til að kjósa um kvöldið. Ég var að hugsa um að segja að ég myndi fá útprentun frá símanum yfir þá sem kysu en hætti við, fannst það gefa í skyn vantraust. Sendi síðan Ástu mynd af strákunum sitjandi við 30 cm snókerborð með sinnhvorn bjórinn innan seilingar til að fullvissa hana um að allt væri undir kontról heima. Sófanum var síðan snúið að heimilistölvunni og síðan biðum við stjarfir eftir fyrsta laginu. Kalli litli fór hamförum á syngjandi afmæliskortinu sem gáfum Ástu í fyrra og lá við handalögmálum þegar Kalli spilaði kortið í fimmtugasta sinn einmitt þegar keppnin var að byrja. Eftir stuttar en snarpar umræður um hvað best væri að gera í stöðunni vorum við Óðinn sammála um að best væri að leyfa Kalla að hafa hel... kortið, annars myndi hann grenja stanslaust fyrstu þrjú lögin.
Fyrsta lagið var síðan frekar súrrealísk upplifun þar sem ofursminkaður Geir Ólafsson söng með miklum tilþrifum með undirspili frá fölsku afmæliskorti. Ég dáist að þrautseigju Geirs og dugnaði.
Þegar Fanney kom fram með lagið sitt tók Kalli óvænta en kærkomna pásu frá afmæliskortinu og fór að klifra upp á sófann og hoppa ofan á bakið á mér trekk í trekk. Við vorum yfir okkur hrifnir af frammistöðunni. Einn okkar, sem ég mun aldrei nafngreina svo lengi sem ég lifi, en er ca 125 cm á hæð, mjög ljóshærður og er sá eini okkar sem ekki heitir Kalli, sagði samt að honum þætti mamma "skrítin" þegar hann sá hana í sjónvarpinu.
Lögin sem á eftir komu voru ljómandi góð og keppnin var augjlóslega hörð.
Okkur til mikillar ánægju var Spaugstofan næsti dagskrárliður. Hana hafði ég ekki séð í um tvö ár en hefur greinilega ekkert breyst. Geir og Grani eru alltaf jafn fyndnir og skemmtilegir.
Úrslitin voru ákveðin vonbrigði en þau sem komust áfram voru þess fyllilega verðug. Við huggum okkur bara við það að lagið hans Hallgríms komst áfram síðustu helgi og vonandi kemst hitt lagið hans áfram næstu helgi. Við ætlum allavega að vera límdir við tölvuskjáinn.
Þá er bara að hringja í Símann og óska eftir lista yfir þá sem kusu Fanneyju. Það eru augljóslega einhverjir sem hafa svikist undan merkjum. Þeir sem kusu minna en 5 sinnum eiga ekki von á góðu! Það mun taka nokkra daga fyrir mig að fá listann en þeir sem vita upp á sig sökina geta játað hér fyrir neðan og þannig komist hjá refsingu. kv Kalli

0 Comments:
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home