Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Sunday, January 29, 2006

Ásta komin heim

Keyrði út á Stansted seinnipartinn til að ná í Ástu. Strákarnir voru óvenjurólegir í aftursætinu enda hafði ég hlaðið fartölvuna þannig að þeir gátu horft á Latabæ á leiðinni. Umferðin var eins og best verður á kosið. Við höfum stundum lent í klukkutíma umferðarteppu á M25 enda má ekkert koma þar upp á til að allt fari í steik. Ég held að þetta sé fimmta ferðin til Stansted á árinu. Mér finnst það alltaf áhugavert því ég þekki alltaf einhvern í sjón fyrir utan þann sem ég er að sækja eða fara með. Ástu var boðið upp á kókoskúlur þegar hún kom heim, enda ennþá nóg eftir. Hún afþakkaði gott boð þannig að þær fara bara í frystinn og verða boðnar fyrsta gestinum sem heimsækir okkur frá Íslandi. kv Kalli

0 Comments:

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home