Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Sunday, December 25, 2005

Jólaguðspjall

Á þessum helgasta degi ársins er jólaguðspjallið skrifað í Vestmannaeyjum. Hingað komum við með Herjólfi á Þorláksmessu. Ferðin tók þrjá tíma í talsverðri brælu og sjóveiki. Ég var sá eini sem fékk sér skötu og hamsatólg í upphafi ferðar og það virðist hafa slegið talsvert á sjóveikina, a.m.k. urðu hinir veikari.
Allt frá því við komum hefur rignt og ekki snjó að sjá. Bærinn iðaði samt af mannlífi á Þorláksmessukvöld og jólaandinn sveif yfir vötnum. Kalli litli náði sér í íslenskt kvef og er búinn að vera hálfúrillur.
Á aðfangadagskvöld borðuðum við dýrindis svínahamborgarhrygg með brúnuðum kartöflum og tilheyrandi og heimatilbúinn ís í eftirrétt. Síðan lagði ég mig á meðan hinir vöskuðu upp og þá tóku gjafirnar við. Þær voru hver annarri glæsilegri. Ég las síðan bókina Myndin af Pabba sem var vel skrifuð og áhugaverð en tæplega skemmtileg; var samt vel farið með viðkvæmt efni.
kv KALLI... nú tekur Ásta við...

Hæ hæ

Við þökkum kærlega fyrir allar gjafirnar. Kalli litli fékk bæði mjúka og harða pakka. Hann hefur verið í sverðaslag í dag, fékk flott sverð frá frænda sínum og skemmtir sér við að segja HAYJA!! og stinga okkur hin á kvið. Óðinn fékk annað eins og ættu þeir bræðurnir núna að geta útkljáð hin margvíslegustu deiluefni með þessari tækni.
Eitthvað hefur frést til landsins hvursu kalt er í kofanum okkar í Englandi og var að finna ýmislegt mjög nýtilegt í mjúku pökkunum. Teppi, flíspeysur og ullarnærföt var meðal þess sem við fengum og erum við ákaflega þakklát fyrir.

Við förum aftur til Reykjavíkur 27. des en ég verð nú að segja eins og er að ég er pínu kvíðin fyrir sjóferðinni, enda gubbaði ég mjög mikið á leiðinni hingað. Vonum það besta.

Nú nálgast áramót, alltaf viss vatnaskil þar. Gera flestir áramótheit í huganum? Ég held að árið ætti að geta orðið mjög skemmtilegt, enda margt spennandi framundan.
Þegar þetta er skrifað er ég búin að lesa eina jólabók og komin langt með næstu. Las Myndina af pabba mínum í einum rykk, er núna byrjuð á sunddrottningarsögum Orra vinar.

bæ í bili....

1 Comments:

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home