Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Tuesday, September 20, 2005

20. Sept.

Óðinn er byrjaður að læra spænsku í skólanum og finnst það bara gaman og kann að segja "hvað heitirðu?" á spænsku. Ég held bara að hann verji meiri tíma í námið en ég gerði í gaggó. Minnst ein klst. á dag í spellings, skrift, reikning eða lestur (ensku og íslensku). En hann er líka að læra mjög mikið og virðist bara hafa gaman af þessu.
Strákarnir settu nýtt met í grjónagrautsáti í kvöld. Kalli var eins og í einhvers konar leiðslu, hann starði á diskinn, steinþagði og malaði eins og köttur á meðan hann skóflaði í sig grautnum eins og fullorðinn maður. Hann er annars farinn að taka upp á því að vakna klukkan 5 á morgnanna og vill fá eitthvað að éta og fer síðan bara að sofa aftur. Það er ekki eins og hann fái ekkert að éta fyrir háttinn, nema síður sé. Hann er líka að stækka - á alla kanta.
kv Kalli

0 Comments:

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home