Föstudagur
Fékk útborgað í dag! Fór í Sainsbury´s og keypti allt sem hugurinn girntist á 97 pund, önd,rauðvín, hvítvín og bjór. Var að velta fyrir mér að kaupa pínulitla fugla í matinn en hætti við, leit út eins og spói eða lóa!
Verð að fara að læra að vera alvöru læknir aftur fyrir prófið. Var að líta á gömul próf og það lítur út fyrir að maður verði að kunna að skoða sjúklinga sem er algjörlega nýtt fyrir mér, t.d. augnbotnaskoðun en ég ef aldrei kunnað það almennilega. Eins gott að fara að lesa og æfa sig. Er bara svona hæfilega bjartsýnn, svona 50:50 að þetta hafist í þetta sinn. Fer þá bara aftur í mars. Hef aldrei verið sérstaklega góður þegar "performance" skiptir máli, fer alltaf á taugum. Gekk ekki vel á útskriftarprófinu í læknisfræðinni þegar ég var prófaður í "vitjun" í lyflæknisfræði. Lenti í tímahraki með eldri konu með ýmis vandamál. Prófdómararnir voru hins vegar vinsamlegir og gáfu mér kredit fyrir að reka ekki á efir konunni sem talaði og hreyfði sig með hraða skjaldbökunnar, þrátt fyrir að vera í tímahraki. Gáfu mér 8 í einkunn. Hef aldrei almennilega vitað fyrir hvað, hefði bara verið ánægður með að ná prófinum með 5! Þetta kenndi mér samt endanlega eftirfarandi: maður tapar aldrei á því að vera góður við gamlar konur!
Athyglisvert starf sem ég er í núna. Sé ekkert nema fólk með námserfiðleika þ.e. greindarvísitölu undir 70, en meðalmaður er um 100. Fólk með alskonar litningagalla, flogaveiki og alls konar sjaldgæfa sjúkdóma. Gefur manni aðra sýn á lífið. Það er líka gott að sjá hvað mikið er gert fyrir þetta fólk, maður fær það meira á tilfinninguna að maður lifi í siðmenntuðu þjóðfélagi. Það er erfitt að sjá hvað hægt væri að gera betur. Það er líka alltaf notalegt að hitta fólk sem hefur helgað mörg ár af sinni starfsæfi til að annast fólk með svona fötlun, sem oft á tíðum er mjög erfið, þrátt fyrir lítið kaup.
kv Kalli

0 Comments:
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home