Norman Park



Verð að setja inn myndir af Norman Park þar sem hann er orðinn annað heimili fjölskyldunnar. Kalli litli bætti við einu "orði" í orðasafnið sitt þar í gær, lærði að segja "voff voff". Er samt hætt að hafa áhyggjur af málþroskanum eftir að hafa talað við vinkonu mína á Íslandi sem tjáði mér að öll börnin hennar þrjú hefðu bara kunnað að segja eitt orð (mamma) um tveggja ára aldurinn.
Óðinn er farinn að fara til skiptis á línuskauta og á hjólið í garðinum. Um helgar kemur líka ísbíll og þá er fínt að kaupa sér vanilluís með súkkulaði. Þeir eru ekki jafn örlátir á ísinn hér og á Íslandi, setja lítið af ís ofan í brauðformið og svo bara lítinn topp ofan á.
Ég var voða mikill sybbalingur í dag, ætlaði að fá mér smá blund en endaði á því að lúra frá 11-16. Ætlaði að fara með peyjana í sund á eftir en það var búið að loka lauginni. F'orum því bara í staðinn í Norman Park. Allir sáttir við það.

0 Comments:
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home