Fimmtudagur-langur dagur
Það kom mér heilmikið á óvart þegar ég flutti hingað hvað margt er líkt með Bromley og Reykjavík. Hér er verslunarmiðstöðin opin til 2100 á fimmtudagskvöldum og frá 11-17 á sunnudögum, er það ekki svipað í Kringlunni? Svo fór ég að svipast um hér, önnur hver verslun er í eigu Íslendinga, Oasis, Karen Millen, TK Max ofl. Sennilega hafa Íslendingar innleitt þetta eftir Bretum.
Fór í stórt launaviðtal í dag í vinnunni, nú á að setja NHS tannlækna á fast kaup, fæ loksings borgað ef ég tek mér sumarfrí heilar 4 vikur á ári-alger lúxus!! Var búin að æfa pókerfeisið bísna vel held ég.
"hvernig gekk í prófinu?"-Þetta er spurningin sem Kalli er að rembast við að svara þessa dagana, við lofum að birta niðurstöðuna hér á netinu í næstu viku, það eru tveir möguleikar á fyrirsögnum á þeim pistli:
HANN SKÍTFÉLL!! eða
STRÁKURINN OKKAR BRILLERAÐI!!!he he
Ásta

0 Comments:
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home