Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Wednesday, September 14, 2005

Haustar í Bromley

Jæja núna er september hálfnaður samkvæmt almanakinu. Ég er alltaf að búast við rigningu og gulum laufblöðum með tilheyrandi kulda en ég er ennþá bara í stuttermabolnum mínum og það er alltaf jafnheitt. Þetta hlýtur nú að fara að breytast.

Fékk einn á stofuna sem hafði ekki farið í 40 ár til tannlæknis. Ótrúlegt!!Sagðist skrúbba tennurnar sínar einu sinni í viku upp úr salti og hafa aldrei haft óþægindi. Þessi hafði bara fínustu tennur, allar heilar og fínar. Hefur líklega ekki verið að háma í sig sykur síðustu 40 árin.

Núna er Óðinn minn kominn á fullt í tómstundir, ég hef ekki undan við að fylla út beiðnir fyrir hinum ýmsu námskeiðsboðum sem koma frá skólanum. Skráði hann í "Gardening club" í síðustu viku. Það allra nýjasta er svo spænska sem er kennd einu sinni í viku. Ég þarf greinilega að fara að dusta rykið af örlítilli spænskukunnáttu sem ég aflaði mér fyrir mörgum árum. Gæti líka fengið smá kennslu hjá einum tannlækni á stofunni sem er spænskur svo ég nái að vera skrefi á undan Óðni í náminu og hjálpa honum eitthvað.

Karl Reynir fór í stóra prófið sitt á þriðjudaginn, svaraði 180 spurningum á 90 mínútum. Fær niðurstöðuna í næstu viku, ef hann nær 80 % árangri þá fær hann að fara í munnlega hlutann eftir 1 mánuð. Ef hann fellur á munnlega hlutanum, þá þarf hann að taka skriflega hlutann aftur. Næsta skriflega próf er eftir 6 mánuði. Alveg dásamlegt.

Var að lesa um verðbólguskrið á Íslandi, fæ ekki beint heimþrá við þá lesningu. Er búin með Geishubókina en ætla að lesa næst bók sem heitir Slow sem Egill Helga mælir með á Silfur Egils. Það er ágætt fyrir mig að lesa anti-stress lesefni, er á klukkunni 8 klst á dag að skipuleggja hverja einustu mínútu í vinnunni.

Fórum í Norman Park áðan, alveg frábært, alveg stillt veður og hlýtt. Kalli litli var að leita að flugvélum á meðan við Óðinn fórum á línuskauta. Kalli litli er lítið farinn að tala greyið, segir þó mamma, pabbi, nei , já og svo bara AVA AVA sem getur þýtt bísna margt. Rosa fínn túr.

Drengirnir eru sofnaðir núna, ætla að fara leyfa Óðni að hlusta á Harry Potter geisladiska á kvöldin áður en hann fer að sofa, hann hefur verið að biðja um það, ég held að hann sé nógu stór til þess. Ef ekki, þá prófa ég bara eftir 1 ár aftur.
Ásta

0 Comments:

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home