Velheppnaðir flutningar
Þá erum við loksins búin að skila gömlu íbúðinni af okkur og komin í nýja húsið. Við eyddum heilli viku af sumarfríinu okkar í að tjasla upp á grenið áður en það er tekið út af óháðum aðila. Við bíðum nú eftir stóradómi. Afar ólíklegt að við fáum svo mikið sem penny til baka af tryggingunni. Brotinn ískápur og frystir, gat í háaloftinu eftir að Ásta datt í gegnum það, tómatsósublettir í teppinu etc. Við reyndum samt okkar besta til að laga þetta og ég eyddi áreiðanlega heilum degi í að reyna að hreinsa teppin með nýju ofurryksugu/teppahreinsi/flóðsuguvélinni okkar. Þetta byrjaði á frekar siðmenntaðan og yfirvegaðan hátt með teppahreinsun "eftir bókinni". Síðan stigmagnaðist örvæntingin. Ég spreyjaði ýmsum ofurhreinsiefnum á teppið með takmörkuðum árangri-stóð samt á þeim öllum: "this really works!". Í lokin var ég bókstaflega farin að hella úr skúringarfötu á helvítis teppið og sogaði það síðan upp með ofurvélinni. Alltaf var vatnið brúnt af skít. Eftir sjöundu umferð læddist að mér sá grunur að ég væri farinn að hreinsa skítinn eftir eftir einhvern leigjanda sem hafði búið þarna fyrir 20 árum og þá sagði ég stopp.
Þegar allt var komið í nýja húsið áttuðum við okkur á því að við höfðum gleymt mikilvægastu hlutunum-skólasólblómunum. Þau voru enn í garðinum og við búin að skila lyklunum. Við settumst niður til að reyna að leysa vandamálið en fundum ekki neina lausn sem rúmaðist innan ramma laganna. Það var ljóst að við yrðum að ræna sólblómunum í skjóli nætur.
Þegar orðið var vel dimmt keyrðum við á gamla staðinn og lögðum bílnum þannig að auðvelt væri að reikspóla í burtu. Við gengum úr skugga um að enginn væri inni í íbúðinni. Ásta settist síðan í bílstjórasætið með bílinn í gangi. Ég rölti síðan út og fór yfir græjurnar. Tveir blómapottar og skófla. Ég fann hvernig hjartað sló hraðar og svitadropar láku niður bakið á mér. Hér mátti ekkert fara úrskeiðis-inn og út á tveimur mínútum max.
Við Ásta stilltum saman úrin og síðan hljóp ég inn sundið, opnaði hliðið að bakgarðinum og setti græjurnar niður hjá sólblómunum tveimur sem áttu bókaða one-way-tikcet í nýja húsið. 15 sekúndur farnar bara sí sona. Ég leit upp og við mér blasti uppljómaður stofuglugginn í næsta húsi sem lýsti upp á mér andlitið. Lambhúshetta eða sokkur yfir hausinn hefði komið sér vel.
Á innan við mínútu var ég búinn að flytja sólblómin tvo yfir í nýja potta. Ég hljóp út í bíl, henti þeim í skottið, hlassaði mér í farþegasætið og öskraði á Ástu: "go, go, go". Bensíngjöfin fór nánast í gegnum gólfið, reyk lagði frá bílnum og finna mátti heita dekkjalykt. Eftir 10 metra akstur á getaway bílnum þurftum við hinsvegar að taka allharkalega 180 gráðu beygju því við höfðum óvart lagt bílnum þannig að hann stefndi inn í botnlangann.
Á leiðinni heim gættum við þess vel að okkur væri ekki veitt eftirför áður en við fórum heim. Enn á ný höfðum við framið hinn fullkomna glæp. Í framtíðinni ætlum við samt að nota lambhúshettu eða sokk og gæta þess að bílnum sé lagt þannig að ekki þurfi að snúa við eftir nokkra metra. Eða jafnvel hringja bara í leigusalann til spyrja hvort við megum ná í það sem við gleymdum.
kv Kalli

3 Comments:
Hæhæ
Gott að heyra að flutningarnir gengu vel... líka á sólblómunum!!!!(treysti því að þau braggist vel í nýja garðinum!)
Allt gott að frétta héðan, aðeins að minnka hitinn sem er bara ágætt.
Hlakka til að heimsækja ykkur í nýja húsið... (p.s. væri gaman að sjá myndir af því að innan)
kv.
Anna Björg
By
Anonymous, At
Wednesday, 02 August, 2006
Kalli minn!
Ég sé ekki betur en þú hafi framið sólblómastuldinn "by the book" fyrir utan nokkur byrjendamistök sem þú virðist þegar hafa áttað þig á. Lambhúshetturnar eru algjört möst og einnig það að snúa bílnum rétt.
Smá ábendingar til viðbótar:
#1. Skipta um skráningarnúmer á bílnum áður en lagt er af stað.
#2. Ekki reykspóla frá vetvangi. það vekur eftirtekt.
#3. Aldrei að taka konuna með því einhver þarf að gæta barnanna ef upp kemst um brotið og það kallar á "doing time".
Ég man eftir fréttum að utan fyrir einhverjum árum um "álfaþjóf" sem fór um að næturlagi og stal garðálfum. Kvað svo rammt að dugnaði hans í viðkomandi bæjarfélagi að komið var á "álfavakt".
Ef þið hjónin haldið áfram á sömu baut (spenna getur orðið að fíkn eins og þið vitið)gætuð þið komist á spjöld sögunnar í Bretlandi sem
"the sun flower bandits". Ég er ekki bara að tala um "15 minutes of fame" heldur bækur og fréttir sem fjalla um uppeldi ykkar, menntun og hugsanleg trauma á lífsleiðinni hafi gert ykkur að krimmum.
Mér þætti vænt um að þið hjónin létuð af þessum ósóma og tækjum siði breskra til að svala spennuþörfinni og færuð í bingó!.
Kveðja,
Einar, pabbi.
By
Anonymous, At
Thursday, 03 August, 2006
Við hjónin þökkum góð ráð frá velviljuðum ættingjum með sérfræðiþekkingu á þessu sviði. Þetta verður tekið til greina. Ennfremur höfum við ákveðið að hafa Kalla litla ekki með í næsta verkefni.
kv Kalli
By
Bromley, At
Saturday, 05 August, 2006
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home