Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Tuesday, July 11, 2006

Æsispennandi fréttir

Þeir sem eru veikir fyrir hjarta ættu að hætta að lesa HÉR.
Í gær fór ég út í búð til þess að kaupa ryksugu. Vegna þess að ég alltaf svo spontant og geri hvað sem er fyrir smá adrenalínkikk þá gerði ég mér lítið fyrir og keypti appelsínugult skrímsli sem er allt í senn ryksuga, teppahreinsir og flóðsuga. Og ekki nóg með það því í dag áttaði ég mig á því að klósettið á neðri hæðinni er ekki lengur stíflað. Ýmis inngrip hafa verið reynd um langt skeið en svo virðist sem hægðabannið sem tekið var upp ekki alls fyrir löngu hafi gert gæfumuninn. Ég mun því leggja til á næsta fjölskyldufundi að banninu verði aflétt í tilraunaskini. Mér fannst rétt að deila þessu með ykkur. kv Kalli

2 Comments:

  • Jæja þetta eru nú ánægjulegar fréttir. Kúkabaninu aflétt.....magnað.

    By Anonymous Anonymous, At Wednesday, 12 July, 2006  

  • Lýsingarnar á appelsínugula skrímslinu og hvers það er megnugt eru slíkar að ég legg til að þú lesir leiðavísinn aftur. Ég held að þú hljótir að hafa farið í ranga verslun og keypt "haugsugu" í stað "ryksugu". Kíktu á leiðavísinn það er munur á því hvort svona græjur eru gerðar fyrir "domestic use" eða jafnvel "industrial use". Er skrímslið e.t.v. keypt í B&Q ?
    Vonandi eru drengirnir reknir út húsinu þegar skrímslinu er sleppt lausu!
    Áhyggjufullur, Einar afi.

    By Anonymous Anonymous, At Thursday, 03 August, 2006  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home