Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Monday, July 03, 2006

Heitt heitt heitt



Sá í sjónvarpinu áðan að á morgun verður líklega heitasti dagur ársins, 33 gráður með miklum raka. Við reynum að sporna við þessu við litlum viftum en gengur illa. Best væri að standa í sturtu allan daginn en maður þarf víst að mæta í vinnuna til að stunda lækningar. Í dag voru lítil börn á biðstofunni sem ældu (greyin kannski búin að bíða í 30+ gráðum í 30 mín), klinkurnar voru ekki hrifnar af því að þrífa heita æluna.
Óðinn heldur samt áfram að hoppa á trampolíninu, er bara kátur í hitanum.
Við erum að jafna okkur eftir særindi helgarinnar, það að Englendingar komust ekki áfram í undanúrslit í fótbolta. Við fórum út að borða og þurfti heila hvítvín fyrir mig eina til að kyngja særindunum. Óðinn var mjög kátur að fá Einar tengdapabba í heimsókn yfir helgina enda fékk hann greidda leigu fyrir herbergið sitt (meiri peningur í skjaldbökusjóðinn). Fyrir þá sem ekki vita er Óðinn að safna sér fyrir skjaldböku og er næstum því kominn með fyrir henni. Já við erum líka að fara að flytja núna fljótlega, flytjum í rúmbetra húsnæði eftir 2 vikur. Biðjum við dygga lesendur Bromleytíðinda að fjölmenna og hjálpa okkur við flutningana. Bjór og pizza verður í boði okkar.

3 Comments:

  • hæhæ

    TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ!!! Frábært að heyra að þið hafið fundið nýtt húsnæði með svona stuttum fyrirvara... hlakka til að heyra meira!

    Sit bara heima og bíð eftir að eitthvað gerist... er þó "sem betur fer" farin að fá smá verki... jíha!
    Líka rosalega heitt hérna, mömmu og pabba finnst það alveg frábært en Helga Valborg vill helst vera inni eða í skugganum.

    Bestu kveðjur frá Köben,
    Anna Björg

    By Anonymous Anonymous, At Tuesday, 04 July, 2006  

  • Hvenær ætla Evrópubúar að fara að fatta uppfinningu sem að heitir LOFTKÆLING og er standart í öllum húsum í USA. Aldrei hefur verið litið á Ameríkana sem einhverja snillinga en í þessum málum þá vinna þeir í gáfum hehe. Annars er ég voða kát fyrir ykkar hönd að þið séuð búin að finna ykkur nýtt húsnæði. Verst að geta ekki þegið bjór og pizzu gegn hjálp við flutningana, en okkur býðst það eflaust einhvern tíman seinna aftur. Vona að þið fáið einhverja hálparálfa þarna. Gangi ykkur vel elskurnar.

    Kv, lille sis

    By Blogger Fnatur, At Wednesday, 05 July, 2006  

  • Er fjölskyldan búin að kaupa slot? Hlakka til að koma og gista í gestahúsinu. Get trúlega ekki hjálpað við flutningana. Verð upptekinn í suður Bromley.

    Kv. Orri

    By Anonymous Anonymous, At Wednesday, 05 July, 2006  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home