England 2- Svíþjóð 2


Í kvöld settist fjölskyldan niður við imbann og horfi á fótbolta. Við upplifðum svona íslenska Evróvisionstemningu, ekki hræða á götunum, allar pizzurnar uppseldar í hverfisbúðinni og vinnufélagarnir að skipuleggja fótboltapartý (hvort sem þeir hafa áhuga á fótbolta eða ekki).
Hérna veit hvert mannsbarn eldri en 6 ára hvaða bein Rooney braut um daginn og öll enska þjóðin fylgdist spennt með þegar færustu beinasérfræðingar Evrópu lásu úr MRI skanninu sem hann fór í.
Ég bakaði Betty Crocker köku í tilefni dagsins og rann hún ljúflega niður í mannskapinn.
Við höldum svo annað partý þegar England mætir Ecqador í 16 liða úrslitunum. Áfram England!
Kv. Ásta

4 Comments:
Gaman að þið skemmtið ykkur vel en hvað varð um
ÁFRAM ÍSLAND
hehehe GRÍN.
By
Anonymous, At
Tuesday, 20 June, 2006
Já gleymdi að segja flott kaka og fín fánamynd af Óðni.
By
Anonymous, At
Tuesday, 20 June, 2006
Nú er gaman að búa á Englandi! Leikurinn var frábær. Fantaskemmtun.
By
Anonymous, At
Wednesday, 21 June, 2006
Já jafnvel Fnataskemmtun híhí.
By
Anonymous, At
Friday, 23 June, 2006
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home