Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Wednesday, July 05, 2006

Jæja...

Þá þarf maður að fara að slá helvítis garðinn, þetta er allt komið í órækt. Sólblómin vaxa og vaxa og þau stærstu orðin hærri en prikið sem heldur þeim uppi. Hvað þarf maður eiginilega stór prik fyrir þessar jurtir? Endar sennilega með því að ég verð að kaupa 3 metra bambus til að styðja við þessi skrímsli.
Dagurinn í dag var viðbjóðslega heitur. Svitadroparnir hreinlega drupu af mér niður á útbýtin í fyrirlestrunum í dag og ég sá allt í móðu. Einhver asnaðist til að spyrja hvort það væri enginn loftkæling í húsinu. Hann fékk þau svör að það væri loftkæling en hún hefði undanfarin ár alltaf bilað á heitasta degi ársins, þolir hreinlega ekki álagið. Síðan þarf alltaf að skrifa bréf til viðhaldsdeildarinnar og ef vel gengur er gert við loftkælinguna í september, þegar farið er að hausta. Þetta flokkast að mínu mati undir snilld.
Til þess að létta mér lundina ákvað ég því að skella í túnfisksalat þegar ég kom heim. Salatið var algjört æææðððiii!! Það er svo gaman að gera eitthvað skapandi með mat. Ég er vanur að setja nota túnfisk, lauk, harðsoðin egg og gular baunir, en núna gerðist ég svolítið wild og setti slatta af rauðri papriku með. Þetta sló alveg í gegn, meiriháttar gott.
Ég var svo high eftir þetta að ég dró fram efnisbúta sem ég keypti í síðustu viku á útsölu og ætla að nota í gardínur. Ég er búinn að mæla fyrir gardínunum en ég er bara ekki alveg nógu ánægður með litinn, efnið er svona kóngablátt en ég held að það komi betur út að hafa þetta meira út í lillablátt og svolítið rifflað í endana. Læt vita hvernig þetta kemur út.
kv Kalli

5 Comments:

  • Hey elskan, bara að drífa sig og koma út úr skápnum,
    Love,
    Eiginkonan

    By Blogger Bromley, At Thursday, 06 July, 2006  

  • Einmitt það sem að ég hugsaði. Hvort er hann gay/straight man eða straight/gay man? Kannski ertu bara UBER metro. Drífa sig í að fjárfesta í bleikum pólobol og best ef að hann er smá út í lilla haha.

    Gaman að túnfisksalatið gekk svona vel. Ef þú vilt vera mega wild næst og prufa eitthvað alveg nýtt í túnfiskinum þá er þetta mín uppskrift sem ég nota spari.
    Makkarónur soðnar
    túnfiskur
    sýrður rjómi
    kotasæla
    harðsoðin egg
    rauð paprika (smátt saxað)
    blaðlaukur (smátt saxað)
    ferskt spínat niðurskorið
    2 msk maple sýróp
    hvítlaukspipar
    1/2 tsk salt

    stórt salatblað lagt á disk
    túnfisk salatið sett ofan á það
    skreytt með agúrkum og papriku.

    Algjört jammí

    By Blogger Fnatur, At Thursday, 06 July, 2006  

  • Hey Kalli minn. Hvernig ganga gardínumálin??

    Kv, Fnatz

    By Blogger Fnatur, At Sunday, 09 July, 2006  

  • Gardínumálin ganga ekki alveg nógu vel. Saumavélin bilaði þannig að ég er bara að hugsa um að handsauma þetta.
    Kalli

    By Blogger Bromley, At Sunday, 09 July, 2006  

  • Æi bilaði saumavélin. Þér hefur ekki dottið í hug að splæsa bara í gardínur á www.ikea.com, eða www.overstock.com, jafnvel www.bedbathandnbeyond.com, svona 10 gardínu síður í viðbót koma upp í kollinn.

    By Anonymous Anonymous, At Tuesday, 11 July, 2006  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home