Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Thursday, July 13, 2006

Nýtt heimili


Við fórum að hitta leigusalan í kvöld. Hann er maður á sextugsaldri og var boxing promoter hér á árum áður. Núna leigir hann út hús og keyrir á milli þeirra á svaðalegum sportbíl á milli þess sem hann fer í viðskiptaferðir til útlanda. Þetta virtist bara vera ágætis karl og lét okkur bara fá lyklana að án þess að vera búin að skrifa undir neitt eða borga krónu. Hann setti okkur bara eitt skilyrði: ef við höldum partý þá verðum við að bjóða honum.
Ég er búinn að finna stað fyrir sólblómin í nýja garðinum, agúrkurnar og tómatarnir fara bara beint í gróðurhúsið.
Við erum farin að hlakka til þess að flytja og strákarnir eru himinlifandi með þetta allt saman. Þeir voru sérstaklega spenntir fyrir tjörninni í garðinum sem er víst talsvert djúp því fyrri eigendur héldu þarna fiska sem gæludýr, hmmmm eitthvað til að hugsa um.
kv Kalli

4 Comments:

  • Fyrir taugaveiklaða lesendur Bromleytíðinda má geta þess að sett verður net yfir tjörnina til að drengirnir geti ekki dottið ofan í hana, kv. Ásta

    By Blogger Bromley, At Thursday, 13 July, 2006  

  • Glæsilegt. Mikið er ég glöð fyrir ykkar hönd. Endilega setjið fleiri myndir. Líka innan í húsinu.

    Kv, Fanney

    By Anonymous Anonymous, At Thursday, 13 July, 2006  

  • hæhæ,

    Frábært! Til hamingju með nýja húsið...lítur rosalega vel út... hlakka til að koma að heimsækja ykkur þarna.

    kv. úr sólinni
    Anna Björg

    By Anonymous Anonymous, At Sunday, 16 July, 2006  

  • Er það með ráðum gert að stilla snáðunum upp fyrir framan slotið svo það "sýnist" stærra ? Til hamingju með nýja heimilið:

    Einar

    By Anonymous Anonymous, At Friday, 28 July, 2006  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home