Valentínusardiskó

Í gær eftir skóla var haldið Valentínusardiskótek í skólanum. Ég fór með Óðinn, hann var voða fínn og fór hann beint að dansa alveg á fullu. Það var bara flottur plötusnúður, hann stjórnaði herlegheitunum. Litlu stelpurnar voru svaka pæjur 5 og 6 ára, sumar með varalit og glimmer í hárinu.
Ég reyndi að vera virk sem foreldri á meðan og gaf börnunum ad drekka og passaði að rétt foreldri sækti þau í endann svo engum yrði nú stolið. Það er alveg viss list að halda uppi samræður við enskar púddur um allt og ekkert. Ég veit aldrei hvað ég á að segja við þær, þær tala mikið um hvað mennirnir þeirra gera og hvernig börnunum gengur í skólanum en lítið um sjálfa sig. Alveg frábært...
Óðinn var orðinn mjög þreyttur eftir diskóið og sofnaði í sófanum í gær um hálf átta þrátt fyrir stór plön um að horfa á opnunarhátið vetrarólympíuleikana.
Kv. Ásta

2 Comments:
Æi hvað hann er sætur svona sofandi. Þú veist að það eru til bækur sem kenna manni listina að tala um ekki neitt.
Kær kveðja, Fanney "kani"
By
Anonymous, At
Saturday, 11 February, 2006
Hæ elsku krúsímúsídúllusnúðurinn hennar Jónu frænku, rosalega ertu sætur svona sofandi.
Kveðja J
P.s.
Ég veit um eitt gott umræðuefni sem ég las í bókinni Móðir í hjáverkum, en það er að spyrja þær um góða uppskrift af pæi eða bara allt um pai, eplapai, hnetupai eða perupai, þú mátt bara velja.. þar hefur þú það Ásta mín.
Love J
By
Anonymous, At
Monday, 13 February, 2006
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home