Couvade Syndrome
Þar sem ég get ekki birt myndir af geðsjúkdómum langar mig til að deila með ykkur einu syndromi, Couvade Syndrome.
Þetta syndrome dregur nafn sitt af ákveðnu rituali sem hefur verið lýst í mismunandi menningarsamfélögum öldum saman þar sem eiginmaður óléttrar konu líkir eftir hegðun hennar gegnum meðgönguna. Þegar konan síðan fær hríðir leggst hann sjálfur fyrir og líkir síðan eftir fæðingunni. Nokkra daga eftir fæðinguna er hann síðan rúmlægur á meðan hann er að ná sér eftir átökin. Alvarleg form þessa kvilla eru sjaldgæf en það er algengt að eiginmenn fái minniháttar einkenni frá þriðja mánuði meðgöngu. Þessi einkenni geta verið minnkuð matarlyst, tannpína, flökurleiki og uppköst (oft morgunógleði), meltingartruflanir, óljósir kviðverkir, harðlífi og niðurgangur. Kvíði, spenna, svefnörðugleikar eru einnig algeng einkenni. Þetta eru ekki ranghugmyndir, eiginmaðurinn trúir því ekki í raun og veru að hann sé óléttur.
Það er til marks um fordóma almennings gagnvart geðsjúkdómum að Ásta segir að ef ég myndi fá alvarleg einkenni þessa sjúkdóms, þá myndi hún skilja við mig! Þetta er nú ekki hægt, enginn skilningur á þeim bænum. kv Kalli

3 Comments:
Ég held að þessi sjúkdómur sé ekki til. Ég skora á Kalla að birta viðtal við sjúkling með svona sjúkdóm, ég vona alla veganna að þessi sjúkdómur sé ekki til, væri mögulega stærri skilnaðarsök en framhjáhald. Stelpur, hefðuð þið EINHVERJA samúð með svona "kjúklingi"? ég meina sjúklingi.
Kv. Ásta
By
Bromley, At
Monday, 13 February, 2006

Vá þvílíkur "sjúkdómur". Veit ekki alveg hvort ég gæti á meðan ég væri ólétt sýnt manninum mínum skilning með svona "sjúkdóm". Uhummm vonandi eru ekki miklar líkur á að það muni nokkurn tíman gerast. Jú þetta væri nú alveg efni í skilnaðarorsök númer eitt. Því meira sem ég hugsa um þetta því fáránlegra finnst mér það.
MEINE GUTE. Kv, Fanney
By
Anonymous, At
Monday, 13 February, 2006
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home