Uppskrift af kókoskúlum
Kókoskúlufjölskyldunni hefur borist fyrirspurn um uppskrift af leyndarmáli kósíkvölda. Það hljómar eftirfarandi:
100 g mjúkt smjör
1 dL sykur
3 dL haframjöl
2 msk kakó
1 tsk vanillusykur
2 msk kalt kaffi
Skraut: kókosmjöl
Leiðbeiningar:
1. Peppið upp stemningu með með amk 48 tíma fyrirvara að ná sé nú kominn tími á kósíkvöld svo að börnin upplifi kókoskúlur sem eitthvað rosalega merkilegt. Þessu má ekki sleppa.
2. Hrærið mjúkt smjörið og sykur saman í stórri skál. Hrærið þar til deigið er orðið jafnt og kekkjalaust.
3. Setjið haframjöl, kakó og vanillusykur út í og hrærið vel saman.
4. Hellið köldu kaffinu út í og hrærið vel. Ath. KAFFIÐ VERÐUR AÐ VERA KALT
5. Skammtið deigið í kúlurnar með teskeið. Búið til fallegar kúlur með því að rúlla deiginu á milli handa ykkar.
6. Setjið kókosmjöl á djúpan disk og veltið kúlunum upp úr því. Látið kúlurnar stífna í ískáp góða stund áður en þær eru borðaðar - ef þið getið beðið eftir því!!
Verði ykkur að góðu. Kv. Ásta ( með hjálp frá Vöku Helgafelli-Matreiðslubókin okkar)

3 Comments:
Kærar þakkir fyrir þetta. Stefni í fyrstu kókoskúlugerð í næstu viku. Ætla að taka peppið með í reikninginn haha.
Kær kveðja, Fanney
By
Anonymous, At
Saturday, 11 February, 2006
Þessa uppskrift er búið að peista, líma og prenta út og þið fáið að vita um frh. fljótlega þegar fjölskyldan er búin að upplifa þessa stemmningu:-)
kv. frá Vitastíg
By
Anonymous, At
Monday, 13 February, 2006
Ekki reyna að búa til eina stóra kúlu úr öllu deiginu, það hefur verið reynt hér á bæ með ekkert sérstökum árangri.
Kv. Ásta
By
Bromley, At
Monday, 13 February, 2006
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home