Dvergabachelor..
Í gær var þáttur í sjónvarpinu þar sem "celebrity" kemur og segir frá uppáhaldsþættinum sínum. Uppáhaldsþátturinn í gær var Little People eða eitthvað í þá áttina og var í raun Bachelor með dvergum. Þetta var hálfsúrealískt. Ég er búinn að vera með hálfgerðan móral yfir dvergapistlinum mínum og kemst síðan að því að það er fólk að græða fúlgur á því að gera grín að dvergum. Síðan var andstyggilegt twist í þættinum. Einmitt þegar búið var að reka eina dvergakonuna heim og konurnar sem eftir voru hoppuðu hæð sína í loft upp af gleði (sem var ekki hátt) var aðaldvergurinn kynntur fyrir þremur fullvaxta gyðjum sem var bætt í keppnina bara sí sona. Það var síðan eins og við manninn mælt, hann fór beint í heitapottinn með þeim, skyldi hina dvergana eftir og afneitaði sínum innra dverg. Ég væri nú alveg til í að fylgjast með þessari seríu, þetta er alveg brilliant hugmynd. kv Kalli

2 Comments:
Veistu ég hélt að þú værir að djóka fyrst þegar ég las þetta! Ég hugsaði: Nei hehe.. hann nær mér ekki svona auðveldlega;) En svo ákvað ég nú samt að googla þetta, bara svona to be on the safe side. Og viti menn ÞETTA ER TIL FJANDINN HAFI ÞAÐ! Ég verð að fá að sjá þessa þætti=) !!!
By
Anonymous, At
Thursday, 30 March, 2006
Þetta er einmitt þátturinn sem ég var að minnast á í commentinu mínu í dvergapistlinum. Hrein snilld (ekki samt jafn mikil snilld og David Hasselhoff)en samt alveg brill.
By
Anonymous, At
Sunday, 02 April, 2006
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home