Helgin
Í nótt var klukkan færð fram um einn klukkutíma. Við getum því farið að fara í Norman Park aftur eftir vinnu. Vorið er nú loksins að koma, blóm farin að springa út og farið hitna aftur.
Við hlökkum mikið til næstu vikna og mánaða. Við erum búin að skipuleggja ferð til Danmerkur um páskana þar sem við munum dvelja meðal góðra vina. Ásta er einnig búin að bóka ferð til New York fyrir sig eina og ætlar að skilja mig eftir með strákana. Það læðist að mér sá grunur að þetta sé í refsingarskyni fyrir að hafa gleymt afmælisdeginum hennar. Það kemur náttúrulega fyrir bestu menn að gleyma einum og einum afmælisdegi, en ég höndlaði það bara svo illa.
Það var ekki fyrr en ég opnaði mbl.is að morgni afmælisdagsins og Ásta var farin í vinnuna að ég uppgötvaði mistökin. Þegar svo er komið er í raun bara tvennt í stöðunni: Annað hvort viðurkennir maður allt saman eða reynir að láta líta út fyrir að maður hafi þóst gleyma afmælisdeginum og skipuleggja síðan óvænta veislu seinna um daginn. Ég hallaðist að seinni kostinum, græjaði pössun um kvöldið og ætlaði síðan að vera komin heim á undan Ástu með veitingar og blöðrur.
Ásta þurfti samt endilega að eiga afmæli á þriðjudegi, sama degi og ég er á stofugangi eftir hádegi. Mér seinkaði því illilega. Þegar ég kom heim með rósir, konfekt, afmælisköku og blöðrur tók afmælisbarnið á móti mér og sagði: "Ég veit að þú gleymdir afmælisdeginum og ér er ekki ánægð". Þetta var náttúrulega búið spil eftir þetta og ekkert annað að gera en reyna svona "damage control". Ég reyndi samt að þráast við og láta líta út fyrir að þetta hafi allt verið planað með löngum fyrirvara. Það gerði bara illt verra. Hefði átt að vita að þetta gengi ekki, hún svaraði ekki í síma allan afmælisdaginn, bara ísköld þögn.
Svo var mæðradagurinn í dag. Kalli vaknaði rosalega snemma svo ég vakti Ástu svo ég gæti sofið lengur. Jæja, þetta er nóg í bili, ég ætla fá mér bjór, horfa á fótbolta í nýja hlýranetabolnum mínum og svo ætla ég að prumpa bremsufar í nærbuxurnar mínar.
kv Kalli

4 Comments:
Hey, það jákvæða allavegna við þetta afmælisklúður er að ég fæ að hitta systir mína í NY. Á ekki alltaf að reyna að horfa á björtu hliðarnar á annars svona mega klúður málum hehe. Ég get samt gefið þér eitt tip til að þetta gerist ekki aftur og það er að þjálfa Óðinn og Karl Einar upp í það að vera með afmæli á heilanum. Hildur er alltaf stanslaust að undirbúa næsta afmæli þó það séu janfvel 4 mánuðir í það. Ákveða hvaða þema eigi að vera og allskonar stúss og pælingar í kringum það. Það er því engin hætta að við fáum að gelyma afmælum þó við reyndum. Annars köllum við þessa ísköldu þögn sem þú fékkst frá Ástu könglóarkompuþögnina á mínu heimili. Þú gerir þér samt grein fyrir því að þú þarft að næstu 5 afmæli að vera mega ultra súper on top of things ef þú ætlar að jafna málin, því konur geyma en gleyma ekki mhúahahahahahahaha. Eitt annað gott tip sem Högni mælir með og það er að gerast helst áskirfandi (alla vegna kaupa það reglulega) af Cosmopolitan. Hann skilur ekkert í því af hverju þetta blað sé ekki markaðsett líka fyrir karlmenn því þetta sé heilt haf af fróðleik um konur og hvernig sé hægt að skilja okkur betur í einu og öllu. Reyndar hef ég ekki geta verið með mikla konustæla síðan eða "finnst þér ég vera feit" spurningar því hann kann núna öll svörin við því og gengur aldrei í gildrunar. Allt Cosmo að kenna (já eða þakka hehe). Iss Ásta verður búinn að gleyma þessu áður en þið farið á elliheimili ég er viss um það og þú hefur bara gaman af því að hafa strákahelgi. Getur verið með Star Wars þema og alles. Hangið í Play station með Óðni og pantað take out. Þetta verður bara fín stráka helgi í wife beater bolnum þínum. Rock on Homer ;)
Kveðja, Fanney
By
Anonymous, At
Tuesday, 28 March, 2006
hæhæ
Sammála Fanney....þú getur huggað þig við það að Valli gleymdi líka afmælinu mínu (þó aðallega vegna þess að við "héldum upp á það" helgina á undan... og þar með var það dottið út úr minninu)
Passaðu þig bara á að gleyma ekki brúðkaupsafmælinu ykkar... það er eiginlega verra!!!
Hlakka til að sjá ykkur,
kv.
Anna Björg
By
Anonymous, At
Wednesday, 29 March, 2006
Úbbbs, ég stend mig reglulega af því að gleyma brúðkaupsafmælinu okkar. Högni er alltaf bara nokkuð glaður með það því hann græðir þá nokkra extra plús punkta í kladdann og hefur þá svigrúm til að klúðar einhverju ;)
Kv, Fanney
By
Anonymous, At
Wednesday, 29 March, 2006
Hæ hjónakorn
Ég var að koma frá New York, æðisleg borg. Til hamingju með afmælið Ásta mín og Kalli litli. vonandi áttuð þið góðan dag, fyrir utan gleymsku bóndans.
Kalli! ég mæli með að þú stillir símann þinn á hringingu deginum á undan næsta afmæli og það strax hehehe
Kv. María Sif í Moso (bráðum Reyðafirði)
By
Anonymous, At
Thursday, 30 March, 2006
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home