Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Saturday, February 04, 2006

Myndaskoðun og fleira....

Fórum í dag að skoða myndirnar sem voru teknar á ljósmyndastofu fyrir stuttu. Þær komu bara ágætlega út. Við keyptum þrjár nokkuð stórar myndir og fáum þær afhentar eftir um 3 mánuði.
Óðinn fékk vin sinn Alexander í heimsókn í morgun. Frameftir degi léku þeir sér í Playstation en síðan fór ég með þeim í fimmbíó að sjá Chicken Little. Þeir virtust hafa gaman að myndinni en ég hef séð þær skemmtilegri. kv Kalli

1 Comments:

  • Skal veðja við þig að litli kjúllinn er þó nokkuð skemmtilegri en myndin Pétur og kötturinn Brandur. Eina myndin sem ég hef litið á klukkuna á mínútu fresti.

    Kv, Fanney

    By Anonymous Anonymous, At Monday, 06 February, 2006  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home