Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Sunday, February 05, 2006

mætt aftur

Loksins hlýnaði smá. Það er búið að vera svo helv. kalt upp á síðkastið að maður hefur bara þurft að vera í ullarnaríunum innan undir tannlæknagallanum. Ekki sérlega þægileg að nuddast við hana-say no more...

Ég var voða dugleg að hlaupa í dag, byrjaði á því að lyfta í 20 mín, svo hljóp ég 6 km. Er að vinna í því að bræða jólaspikið af mér. Fékk nett sjokk eftir jólin þegar ég steig á viktina; 73 kg, og þar af 29.1 kg hreint spik. Er ekki raunhæft að reyna að bræða svona 2,5 kg af spiki af sér á mánuði? Hvað segja spekingarnir?

Ætla annars snemma að sofa í kvöld, er að fara að svæfa 12 litla krakka á morgun sem eru svo hræddir eða ungir greyin að ekki er hægt að meðhöndla þá nema sofandi.

Heyrumst fljótlega
Bæ í bili-Ásta mætt aftur

1 Comments:

  • Ja hérna, dugnaðurinn í þér. Bara byrjuð að hlaupa. Ég ætla að prufa í næstu viku og sjá hvernig það fer með mig ;)
    Vona að 12 krakkarnir hafi sofið vært.

    Kv, Fanney

    By Anonymous Anonymous, At Monday, 06 February, 2006  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home