Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Saturday, February 04, 2006

Evróvision

Fjölskyldan horfði á Evróvision í tölvunni í kvöld. Lagið hans Hallgríms komst því miður ekki áfram þótt það hafi verið mjög frambærilegt. Sum lög eru einfaldlega þannig að það tekur tíma að kunna að meta þau en vinna á með hverri hlustun; mér finnst það sérstaklega eiga við um lágstemmd og róleg lög. Það er því ekki að ástæðulausu að ekki megi flytja lögin opinberlega fyrir keppnina, þetta tryggir að allir sitji við sama borð.
Það er síðan höfunda að sjá til þess að lögin fari ekki í umferð áður en keppnin hefst - slíkt er einfaldlega þjófstart. Ef lag er í umferð á netinum löngu áður en keppnin hefst hefur höfundur lagsins einfaldlega brugðist. Hvort það gerðist viljandi eða óvart skiptir ekki máli. Þetta er einfaldlega eitt af þeim málum þar sem það skiptir ekki höfuðmáli hvort um ásetning var að ræða eða ekki. Höfundurinn er annað hvort kærulaus eða ætlaði sér að brjóta reglurnar. Hvort sem um er að ræða á að dæma lagið úr keppninni tafarlaust. Það þarf enga fundi til að finna það út. Það þarf hins vegar maraþonfundi til að komast að þeirri niðurstöðu að ekki eigi að fara eftir reglum sem settar voru fyrir keppnina.
Sú niðurstaða að leyfa Silvíu að halda áfram er illskiljanleg og setur slæmt fordæmi. Hverslags lausn er það að hleypa einu lagi í viðbót inn í úrslitakeppnina. Þetta er eins og það sé viðunandi lausn að leyfa manni, sem dæma á úr keppni í 100m hlaupi fyrir þjófstart, að halda áfram en bæta bara við einu sæti í úrslitahlaupinu í staðinn; búa bara til níundu brautina takk fyrir. Þetta er nú meiri vitleysan. Kv Kalli

7 Comments:

  • Sammála síðasta ræðumanni. Reyndar fékk ég líka þá hugmynd að þegar þetta "Silvíu mál" komst upp að hin lögin hefðu átt að vera sett strax í spilun líka. Þá hefði unga þjóðin ekki orðið alveg brjál yfir því að hún hefði ekki fenið að vera með og sanngjarnari staða gegn hinum lögunum.

    Annars fannst mér líka Hallgríms lag koma mjög vel út, hugljúft og fallegt. Birgitta tók sig einstaklega vel út líka og ef einhver veit hvar hún fékk þennan flotta kjól þá vinsamlega látið mig vita. Hef samt tekið eftir því að ÖLL lögin með dansatriðum í hafa komist áfram. Kannski maður fari að æfa dans hehe ;)

    By Anonymous Anonymous, At Monday, 06 February, 2006  

  • Kjóllin hennar Birgittu fæst í Vera Moda, ætlaði að kaupa mér eitt stykki fyrir jólin en komst að því við mátun að maður þarf að vera SÚPER-brúnn fyrir hann hehe=)

    By Anonymous Anonymous, At Monday, 06 February, 2006  

  • HÆHÆ
    Gæti ekki verið meira sammála!! Næ heldur ekki alveg þessum karater, Silvíu Nótt.... kannski þarf maður að búa á Íslandi til að finnast þetta fyndið/kúl... veit ekki... fannst lagið ekki einu sinni gott....
    kv.
    Anna Björg

    By Anonymous Anonymous, At Tuesday, 07 February, 2006  

  • WHAT....Bergós...var hún í Vera Moda kjól. Hélt að þessi kjóll rándýr og frá útlöndum. Jú jú ef það er eitthvað sem að ég er ekki þá er það brún. Takk fyrr að láta mig vita.
    Kv, Fanney

    By Anonymous Anonymous, At Tuesday, 07 February, 2006  

  • Ég er heldur ekki alveg að ná þessu Anna. Þetta er sami brandarinn aftur og aftur. Ég var kominn með leið á þessu eftir 1 mínútu. kv Kalli

    By Anonymous Anonymous, At Tuesday, 07 February, 2006  

  • kommon...strippararnir voru góðir he he


    Ásta
    (sem reynir að sjá góðu hliðina á Sylvíu Nótt)

    By Blogger Bromley, At Tuesday, 07 February, 2006  

  • Þið verðið samt að athuga að sami brandarinn hefur gengið í síðustu 15 ár á Íslandi, hann heitir Spaugstofan. Kannski fíla bara íslendingar sama brandarann aftur og aftur.

    Kveðja, Fanney

    By Anonymous Anonymous, At Wednesday, 08 February, 2006  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home