Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Wednesday, December 14, 2005

Styttist í Íslandsferð

Jæja núna er hið árlega jólastress að læðast inn í Caygill Close. Þetta eru svo margar skyldur sem þarf að muna eftir, jólakort, pakkar, þið vitið örugglega hvað ég er að tala um. Þvottavélin gengur allan sólarhringinn til að enginn þurfi að fara í skítugum fötum til Íslands. Búðirnar eru opnar til kl 2100 öll kvöld til að allir nái nú að versla vel.

Annars fórum við í íslenska jólamessu síðustu helgi, það var reyndar mjög fínt. Ég og Óðinn fórum bara en skyldum Kalla stóra og litla eftir heima. Haldið var jólaball og koma jólasveinar og gáfu börnunum íslenskt nammi.

Í gær var svo haldið jólaleikrit í skólanum, Óðinn lék hóteleigandann sem vísaði Maríu og Jósef á brott á jólanótt. Hann þurfti meira að segja að fara með línu!! Stóð sig ósköp vel. Ég tók herlegheitin upp á spólu, þarf að athuga hvort ég nái ekki að setja brot úr leikritinu til að spila hér inn á síðuna.

1 Comments:

  • Til hamingju með leiksigurinn Óðinn minn. Ég veit að þið munuð öll hafa það alveg ljómandi gott á Íslandi og við óskum ykkur góðrar ferðar.

    Kær kveðja, Fanney

    By Anonymous Anonymous, At Thursday, 15 December, 2005  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home