10 dagar í Íslandsför
Það er orðið þónokkuð síðan ég hef skrifað nokkuð hér. Hef verið svo kvöldsvæf með hálfgerðan winterblues, svona að bíða eftir að það fari að birta almennilega aftur til að hægt sé að fara með drengina út í Norman Park eftir vinnu. Er þó óvenju hress í kvöld þar sem ég fjárfesti í grænu tei um helgina og drakk heilan bolla af því fyrr í kvöld.
Óðinn er að æfa sig undir jólaleikrit þessa dagana, á að leika hóteleigandann í fæðingarsögu jesú sem vísaði Maríu og Jósep á dyr. Ég fann svona náttfatasamtíning sem gæti litið út fyrir að vera frá þessum tíma, straujaði þetta vel og vandlega og setti ofan í sérmerktan poka. Þetta verður að vera fínt, það er mikil búningasamkeppni í gangi og sumar mömmurnar búnar að sitja sveittar við.
Ég fékk leyfi í dag til að biðja ritarann á tannlæknastofunni að afboða 27 sjúklinga til að komast á jólaleikritið, sagði reyndar ekki frá því að ég væri að fara að horfa á skólaleikrit hjá barninu mínu heldur að ég þyrfti að taka daginn í frí til að sinna mikilvægum persónulegum erindum sem ekki gætu beðið. Er það ekki bara nokkurn veginn það sama??
Kalli minn átti afmæli í gær, orðinn 33 ára!! Ég bauð honum út að borða í indverskan mat og áttum við bara notalega stund saman. Hann fékk nokkra litla pakka, þemað var kaffi og fékk hann svona ferðakaffibolla úr Starbucks sem hann getur tekið mér sér í vinnuna og getur haldið heitu allan daginn. Keypti líka "mensbag" sem er svona handtaska fyrir karlmenn´. Mér fannst hann mjög flottur með hana, það er loksins orðið viðurkennt að karlmenn þurfi líka handtöskur án þess að vera að spila í hinu líðinu.
Við þökkum öllum sem sendu kveðjur í tilefni dagsins.
Ég er orðin mjög spennt að koma til Íslands, frétti í dag af fallegum jólasnjó á Akureyri og stórkostlegum skreytingum þar í bæ. Ekki skemmir það að hægt sé að komast á skíði.....
Ég bið samt fyrir bataóskir til náins ættingja sem fór undir hnífinn í gær til að fjarlægja úr sér botnlangann, helví** vont að vera með sprunginn botnlanga, man vel eftir því þó að liðin séu 19 ár síðan.
Gubbupestagengið fær líka samúðarkveðjur, það verður bara meira pláss fyrir jólasmákökurnar eftirá er það ekki??
Kær kveðja í bili,
Ásta

2 Comments:
Hæ allir stórir og smáir.
Kalli minn til lukku með það að vera alveg að ná mér í aldri og þroska..þó sérstaklega aldri...Já það verður ekkert smá gaman að fá ykkur í þessa mýflugu heimsókn...já lasarus er kominn heim og líður nokkuð vel miðað við að vera karlmaður í kvöl ;-)
Love og knús til ykkar allra
Jónasemeraðfaraístjórnunarprófámorgunogkannekkineitt.
ps.skoooo ég gat kvittað fyrir mig er ég ekki dull
By
Anonymous, At
Wednesday, 07 December, 2005
Betra seint en aldrei. Til hamingju með afmælið Kalli.....svona pínu í seinni kantinum en þú skilur þetta því ég var nú á Íslandi þar sem eru engir símar né tölvur ;)
Hringdi í kvöld en þið voruð á einhverju útstáelsi (vona að þýska frúin hafi ekki komið Ástu vegna í boðið). Heyrumst fljótlega.
Kv, Fanney
By
Anonymous, At
Saturday, 10 December, 2005
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home