Kalli í leikskóla
Í síðustu viku byrjaði Kalli litli í leikskóla. Hann fer í skólann á mánudögum og miðvikudögum frá 8 til rúmlega 5. Hann var ekkert alltof hrifin á mánudaginn. Hann var hálfvælinn allan daginn og fór í mótmælasvelti sem varði frá hádegismat og fram að kaffitíma. Honum leið samt strax betur á miðvikudaginn, lék sér við krakkana og gat jafnvel slakað nógu mikið á til að fá sér hálftíma blund í eftirmiðdaginn. Hann virðist því ætla að spjara sig ágætlega.
Kalli litli er því nú við nám við erlenda menntastofnun og hefur bæst í ört vaxandi hóp Íslendinga sem eru að meika það í útlöndum.
kv Kalli
Kalli litli er því nú við nám við erlenda menntastofnun og hefur bæst í ört vaxandi hóp Íslendinga sem eru að meika það í útlöndum.
kv Kalli

2 Comments:
Frábært!! Efast ekki um að Kalli litli á eftir að "meika" það eins og aðrir Íslendingar...
Er Auparið þá farin heim??
kv.
Anna Björg
By
Anonymous, At
Sunday, 06 August, 2006
Nei, við erum enn með au-pair til að aðstoða okkur. Erfitt að vera án þess eins og staðan er núna.
kv Kalli
By
Bromley, At
Sunday, 06 August, 2006
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home