Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Saturday, June 17, 2006


Þá er ég loksins búinn að finna fólk sem er á sömu bylgjulengd og ég. Bandarísku Sólblómasamtökin eru greinilega mjög spennandi félagsskapur. Fyrir þá sem hafa áhuga vil ég einnig benda á að 24th Annual Summer Seminar fer fram í North Dakota núna 20. til 22. júní. Enn möguleiki að skella sér.
Ég var einnig að komast að því að heimsmetið í sólblómarækt er 8.76 metrar sem einhver kúkalabbi í Hollandi afrekaði. Hvaða hormón ætli hann hafi notað? Heimsmetið fyrir stærsta þvermál blóms er 82cm. Semsagt enn langt í land.
kv Kalli

1 Comments:

  • Ég er búin að lesa mér heilmikið til um sólblóm á þessri síðu. Er bara jafnvel að hugsa um að planta nokkrum niður.

    By Anonymous Anonymous, At Sunday, 18 June, 2006  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home