Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Saturday, June 17, 2006

Frakklandsferðin

Að morgni 27. maí héldum við af stað til Frakklands. Við áttum pantað hústjald á tjaldstæði rétt hjá borginni Tours, sem er um 2 klst. frá París. Við keyrðum til Dover þar sem við tókum ferju til Calais, og tók siglingin um 90 mínútur. Við höfðum smá áhyggjur af því að þurfa að keyra hægra megin en það reyndist ekki vera neitt mál. Þetta var nokkuð stíf keyrsla. Strákarnir voru samt nokkuð góðir á leiðinn því við höfðum keypt DVD í bílinn sem var hverrar krónu virði. Flóknasti hluti leiðarinnar var að keyra í gegnum París. Við fórum um úthverfin og sáum Effelturnin bara einu sinni úr fjarska. Við rétt náðum síðan á tjaldstæðið um kvöldið um 15 mín áður en hliðið lokaði.
Fyrsta verkið var síðan að reka frosk út úr tjaldinu og drepa stærstu pöddurnar. Það var næturkalt alla ferðina svo teppin sem við tókum með komu í góðar þarfir. Það var allt til alls á tjaldstæðinu. Róló, úti- og innisundlaug, bar og félagsmiðstöð. Rétt hjá var síðan stöðuvatn með hvítum sandi og sólbekkjum þar sem hægt er að busla í góðu veðri. Strákarnir undu sér best að leika við hina krakkana á róló eða hjólandi um á litlum hjólabílum.
Við fórum samt í nokkrar dagsferðir og heimsóttum rosaflottan dýragarð, eldgamlan kastala, sem mun vera fyrirmyndin að kastalanum í þyrnirós, og svo keyrðum við bara um sveitirnar sem var mjög notalegt.
Ég reyndi að borða local mat þar sem ég gat. Það talaði ekki nokkur maður ensku og matseðlar voru yfirleitt illskiljanlegir. Eitt sinn þegar ég fékk mér rétt dagsins fékk ég eitthvað sem leit út og lyktaði eins og þarmabjúgu-ég er alveg með það á hreinu að þetta voru garnir og ekki laust við að það væri smá kúkafýla af þessu. Ákvað því að klára ekki allt af disknum.

Við héldum síðan heim á leið þann 3. júní. Við völdum aðra leið og fórum fyrir vestan París í gegnum Le Mans.
Ferðin var bara ágætlega heppnuð og það kom mér mest á óvart hvað það er auðvelt að keyra í Evrópu. Á hraðbrautunum nær maður auðveldlega um 120-130 km meðalhraða þannig að maður er ekki lengi með nokkur hundruð kílómetra. Ef maður getur keyrt í Bretlandi getur maður keyrt alls staðar.
kv Kalli

6 Comments:

  • Tek undir það, það er ekkert mál að bruna um Evrópu þvera og endilanga.

    Kv. Orri

    By Anonymous Anonymous, At Sunday, 18 June, 2006  

  • Þetta hefur greinilega verið vel heppnuð ferð. Gaman að heyra frá því.

    By Anonymous Anonymous, At Sunday, 18 June, 2006  

  • Ég var búin að segja ykkur þetta....stærsti kosturinn við að vera "tengdur" við meginlandið!!
    Langar þvílíkt í tjaldferðalag þegar ég les þetta...en læt mér nægja að telja dagana þangað til ég get aftur andað eðlilega....( og sofið á nóttunni)
    kv.
    Anna Björg

    By Anonymous Anonymous, At Monday, 19 June, 2006  

  • Hvað er þetta með Evrópu og engar loftkælingar. Það mætti halda að þetta væri aftur úr fornöld. Koma svo....er ekki fínn bíssssnesss í að starta loftkælingarfyrirtæki???
    Koma af stað loftkælingarÆÐI?????

    Kv, Fanney

    By Anonymous Anonymous, At Monday, 19 June, 2006  

  • Hvað er þetta með Evrópu og engar loftkælingar. Það mætti halda að þetta væri aftur úr fornöld. Koma svo....er ekki fínn bíssssnesss í að starta loftkælingarfyrirtæki???
    Koma af stað loftkælingarÆÐI?????

    Kv, Fanney

    By Anonymous Anonymous, At Monday, 19 June, 2006  

  • Hey Fnatur, ég held að hún meini að hún sé með svo stóra bumbu að þess vegna sé erfitt að sofa,
    (ein að verja Evrópu)

    Hvað er annars loftkæling?
    Ásta

    By Anonymous Anonymous, At Monday, 19 June, 2006  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home