Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Saturday, June 10, 2006

Sólblómamont

Óðinn kom með bréf frá kennaranum úr skólanum fyrir helgina. Þetta var örvæntingarfull neyðaróp örvinglaðrar miðaldra konu. Bekkurinn er að taka þátt í æsispennandi sólblómasamkeppni. Krakkarnir höfðu gróðursett sólblómafræ í vor og sá bekkur vinnur sem er með stærsta sólblómið í lok skólaársins. Það fylgdi sögunni að sólblóm bekkjarins var ekki búið að ná 2cm hæð, en sumir aðrir bekkir höfðu nú þegar ræktað 12cm blóm. Óskað var eftir sjálfboðaliðum til að reyna að rækta stærra blóm fyrir bekkinn.
Ég verð að segja að ég brosti í kampinn þegar ég las bréfið. Við gróðursettum líka sólblómafræ í vor sem nú hefur náð 55(segi og skrifa fimmtíuogfimm)cm. Þetta eru greinilega algjörir amatörar þarna í skólanum sem ekki hafa komið nálægt hard-core sólblómarækt. Ég og Óðinn erum því búnir að skrá okkur í keppnina og ef allt gengur að óskum er sigurinn bara formsatriði. Áfram Ísland!
kv Kalli

6 Comments:

  • Cooolað. Maður ætti kannski að fá þig í smá garðrækt hérna hjá okkur. Þú gætir kannski ræktað sólblóma akur á einum af blettunum okkar. Skellið ykkur bara upp í vél og hoppið hingað í garðvinnu og svo geturðu líkað hjálpað Högna við að smíða wooden playhouse í garðinn okkar. En til hamingju með risa stera sólblómið ykkar. Ekkert smá flott, þetta er líka uppáhalds blómið mitt. Finnst það svo frábært hvernig þau snúa sér eftir í hvaða átt sólin skín.
    Kær kv, Fanney

    By Anonymous Anonymous, At Saturday, 10 June, 2006  

  • Frábært!!
    HVAÐ eruð þið búnir að vera að fóðra það á??
    Gangi ykkur vel í keppninni....
    Kveðjur úr sólinni
    Anna Björg

    By Anonymous Anonymous, At Monday, 12 June, 2006  

  • Sikki likki lóma óm
    eigi er því að leyna,
    þið ræktið sólblóm
    sem liggur milli steina.

    By Blogger Fnatur, At Tuesday, 13 June, 2006  

  • Jæja ekkert skemmtilegt að gerast á NV Kalli?
    Koma með eitthvað slúður um blinda manninn. Já eða bara eitthvað nýtt mont.

    By Anonymous Anonymous, At Thursday, 15 June, 2006  

  • Hvernig fór svo sólblómakeppnin??? Var kannski gert lyfjapróf á sólblóminu ykkar og það dæmt úr leik hehe...=)

    By Anonymous Anonymous, At Friday, 16 June, 2006  

  • Úrslitin verða ekki fyrr en í haust og verða auðvitað birt á Bromleytíðindum.
    Kv. Ásta

    By Blogger Bromley, At Sunday, 18 June, 2006  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home