Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Saturday, June 17, 2006

Sólblóm - update

Þá er sólblómakeppnin hafin fyrir alvöru. Óðinn kom með þrjár veiklulegar plöntur heim með sér. Það var vægast sagt átakanlegt að taka á móti þessum greyjum; þær þjáðust af vatnskorti, voru gular af sólarskorti (þetta eru SÓLblóm!, hvað er þetta fólk að hugsa?) og stóðu ekki undir sér lengur þannig að ég hugði þeim vart líf. Þetta var greinilega verkefni fyrir sólblómaspecialista.
Fyrsta verkefni var að skilja plönturnar í sundur. Þær voru eins og samvaxnir síamsþríburar og deildu sama rótarkerfinu, nokkuð sem hefði drepið þær allar að lokum. Eftir hálftíma aðgerð voru þær allar komnar í sinn eiginn blómapott. Næsti sólarhringur myndir skera úr um hvort þær myndu lifa eða deyja. Til að auka lífslíkurnar voru þær settar í extra næringarmikla mold og fengu síðan eins mikið vatn og þær gátu í sig látið. Þær voru ennfremur bundnar við prik til að halda þeim uppi.
Það er mér sönn ánægja að segja að þær eru enn lifandi. Þegar þær voru gróðursettar þann 14. júní fengu þær nöfnin A, B og C. Við gróðursetningu var þetta hæðin:
A: 15 cm
B: 19 cm
C: 23 cm
mælt frá mold upp að hæsta laufblaði.
Í dag, á Þjóðhátíðardaginn 17. júní, eru nýjustu tölur eftirfarandi:
A: 21 cm (áfram svona!!!)
B: 19 cm (ákveðin vonbrigði, sennilega enn í sjokki)
C: 24 cm (ennþá í fyrsta sæti, en ef A heldur áfram að vaxa með sama hraða þá verður C að halda vel á spilunum til að detta ekki niður í annað sæti).
Þetta ætlar greinilega að verða æsispennandi keppni.
Ég hef verið að velta fyrir mér hvað við Óðinn getum gert til að auka vaxtarhraðann. Ég fór í Homebase og keypti sérstakar ofurnæringarkúlur sem eiga að tryggja tvöfaldan vöxt. Af biturri reynslu setti ég líka sniglaeitur í moldina og nú þegar liggur einn snigill í valnum.
Það var gaman að fá ábendingu um að það gæti verið gott að nota hormón. Ég var einmitt að velta þessu fyrir mér sjálfur. Ég er búinn að finna rótaraukandi hormón sem reyndar á bara að nota til að fá fram rótarvöxt í afskornum blómum. Spurning um að prófa þetta á eitt blómið, kannski blóm B.
Ég ætla nú ekki að vera að monta mig af mínum blómum en ég þykist vita að lesendur þessarar síðu geti ekki beðið eftir nýjustu tölum af mínu blómi. Í dag er það (haldið niðri í ykkur andanum) 86 cm og still going strong. Þann 14. júní var það 78 cm, sem sagt 2-3 cm á dag. Ef heldur fram sem horfir verður það því orðið á þriðja metra í ágúst.
kv Kalli

1 Comments:

  • Frábært!!
    TIL HAMINGJU með að hafa bjargað sólblómunum....og held og lykke með framhaldið!!

    kv.
    Anna Bj.

    p.s. sáuð þið ekki sólblómaakra í Frakklandi????

    By Anonymous Anonymous, At Monday, 19 June, 2006  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home