Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Thursday, June 08, 2006

Topp 10 listi yfir prakkarastrik Kalla litla

1. Vekja mömmu sína kl 2 um nótt og lokka hana inn í eldhús að gefa sér mjólkurglas. Fer síðan og leikur sér í símanum þegar mamma sér ekki til. Nokkrum mínútum síðar hringir síminn. Mamma heldur að þetta sé pabbi að hringja úr vinnunni því hann er á vakt. Hún leyfir Kalla litla því að svara símanum því honum finnst það svo gaman. Hann spjallar síðan dágóða stund en segir "yes, yes" nokkrum sinnum skælbrosandi sem mömmu finnst svolítið skrítið. Þegar mamma fer loks í símann er sagt alvarlegri röddu: "This is the Metropolitan Police. Did you know that your son just called 999?".
2. Nota CD spilarann í bílnum sem sparibauk. Laumaðist til að setja klink inn í raufina þar sem diskurinn fer. Upp frá þessu bara boðið upp á tónlist úr útvarpinu. Heyrum samt stundum í peningunum inni í útvarpinu ef við tökum skarpa beygju.
3. Slá tvær flugur í einu höggi með því að taka HP grillsósuna hans pabba maka henni samviskusamlega blaðsíðu fyrir blaðsíðu á nýju bókina hennar mömmu. Grillsósan kláraðist og bókin eyðilagðist.
4. Taka plasthlíf úr bílnum og lemja Óðinn í hausinn án tilefnis þannig að hann fékk kúlu.
5. Taka sellóið hans Óðins og reyna að brjóta það með því að henda því í gólfið. Klár ásetningur.
6. Kúka á baðgólfið.
7. Lita stofugólfið í öllum regnbogans litum.
8. Tína blóm úr blómakari í garðinum.
9. Fara á trampólínið rétt eftir að hafa skóflað í sig pulsum. Æla hoppandi á trampólíninu.
10. Lita á vegginn, kalla svo MAMMA! FINISHED! DUGLEGUR!!
kv Kalli og Ásta

6 Comments:

  • OMG......ég verð nú bara uppgefin við það eitt að lesa yfir þennann lista.
    Ein spurning samt, hvernig í ansk........ náði drengurinn að setja smápening í cd player ef spilarinn er fram í og hann situr aftur í ???????

    By Anonymous Anonymous, At Friday, 09 June, 2006  

  • OMG......ég verð nú bara uppgefin við það eitt að lesa yfir þennann lista.
    Ein spurning samt, hvernig í ansk........ náði drengurinn að setja smápening í cd player ef spilarinn er fram í og hann situr aftur í ???????

    By Anonymous Anonymous, At Friday, 09 June, 2006  

  • Þetta er æðislegt. Stórskemmtilegur listi. Áfram Kalli! (litli) Topp 20 næst. Það má kúka á miklu fleiri stöðum ;-)

    By Anonymous Anonymous, At Friday, 09 June, 2006  

  • Hey er ekki fínt að leyfa honum að kúka á lóðina ykkar, það gæti orðið hinn besti áburður.

    By Anonymous Anonymous, At Saturday, 10 June, 2006  

  • hahahaha....
    Það er nú ekki annað hægt en að "dást" að þessum "afreksverkum"!!!!
    Verð samt að vera sammála Fanneyju um það hvernig honum tókst að setja pening í CD-spilarann???
    OG þætti gaman að heyra skýringu Ástu þegar löggan spurði hana??!??!?!?

    Vona að það sé jafn gott veður hjá ykkur.... ég er að bráðna (kl er 08:15 og það er kominn 25 stiga hiti og sól)
    kv.
    Anna Björg

    By Anonymous Anonymous, At Monday, 12 June, 2006  

  • 32 gr'adur herna i dag, kv Asta i vinnunni.

    By Anonymous Anonymous, At Tuesday, 13 June, 2006  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home