Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Friday, February 10, 2006

Vinnan mín

Ég er oft spurð hvernig sé í vinnunni. Ég vinn eins og margir næsr fulla vinnu, 830-1700 fjóra daga vikunnar og svo til 1400 á föstudögum. Ég geri flest sem kemur tannlækningum við og ættu flestir að þekkja eftirfarandi orð:

bora
sprauta
fyllingar
krónur
brýr
falskar tennur
títanskrúfuvinna
slys
tannpínur
tannúrdrættir
fegrunartannlækningar
hvítingameðferðir
rótfyllingar

Ég hitti minnst 20 á dag, fer eftir hvað er gert og svo er reynt að troða neyðartilfellum og tannpínum inn á milli.
Ég reyni mikið að fræða foreldra um gildi hollustu og góðrar tannhirðu en stundum gengur það erfiðlega, margir trúa því að tannheilsa sé algerlega genatengd og komi neysluvenjur og þrif munnhols ekkert með hana að gera. Læt nokkrar myndir fylgja með til skemmtunar.
Kv. Ásta

1 Comments:

  • Pínu ólíkt mínum vinnudegi hehe. Hjá mér er hann einhvernvegin svona á virkum dögum.
    Klukkan 7.00 vakna
    8.40 koma Hildi í skólabílinn.
    9.00 Fara í gymmið.
    10.30 laga til, sópa undan Kristínar borði ca 20X yfir daginn.
    11.30 Ná í Hildi í skólann.
    12.00 Hádegismatur.
    12.30 hjálpa Hildi með heimalærdóminn.
    1.00 Lúrustund hjá Kristínu og lestrarstund hjá mér og Hildi.
    3.00 Farið í búð ef eitthvað vantar.
    5.00 Sjónvarpstund, leikið niður í kjallara eða Karate hjá Hildi.
    6.00 Kvöldmatur
    6.30 Krakkabað
    7.00 Tekið til eftir kvöldmat, leiki dagsins og annað slíkt.
    7.30 náttföt og bókalestur
    8.00 Allt komið í ró
    8.10 Hér er ró og hér er friður hér er gott að setjast niður.

    Hehe smá ólíkir dagar hjá okkur.

    By Anonymous Anonymous, At Saturday, 11 February, 2006  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home