Marmite og fleira

Flestir kannast við að hafa fengið svo skelfilegar fréttir að þeir muna eftir því alla æfi hvar og hvenær þeir voru staddir þegar þeir fengu tíðindin, t.d. þegar Kennedy var skotinn eða þegar Díana prinsessa dó. Einhverra hluta vegna þá brennist það alveg inn í heilann á mér hvar og hvenær ég smakka eitthvað sem er fullkomlega óætt.
Fyrra skiptið var þegar ég fór á jólahlaðborð fyrir nokkrum árum. Þar var boðið upp á ostrur sem voru fullkomlega viðbjóðslegar, svona eins og að borða sjórekið hor. Mér er ennþá hulinn ráðgáta af hverju fólk borgar fúlgur fyrir þennan hrylling.
Annað skiptið var í gær. Ég varð fyrir svo miklu áfalli að ég þurfti að leggjast fyrir og gat ekki einu sinni bloggað. Ásta hafði keypt nýtt álegg, Marmite, vegna þess að þetta eina áleggið sem einn vina Óðins borðar. Mér varð litið á dósina og fannst hún bara nokkuð álitleg eins og sjá má hér fyrir ofan, virkaði bara nokkuð traust. Ég tók því teskeið og setti góða slummu upp í mig og átti von á sætu og góðu bragði, svona eins og marmelaði eða sulta. Ef ég hefði lesið smáa letrið hefði ég sennilega komist hjá því að verða flökurt og líða líkamlegar þjáningar dágóða stund. Þetta er alveg rosaleg vont-alveg þess virði að smakka bara til að upplifa bragðið einu sinni. Mér dettur helst í hug að þetta gæti komist nálægt því að borða þvag sem er búið að standa svo lengi að það er orðið að leðju. Það lítur allavega þannig út, lyktar þannig og er salt á bragðið. Meira má lesa um afurðina hér. kv Kalli

1 Comments:
Mér er nú bara hálf óglatt eftir að hafa lesið þennan pistil uggghhh. Hló samt mjög mikið ;)
Kveðja, Fanney (sem heldur sig við ost, skinku, mysing og kæfu á brauð en ekki einhvern Marmite viðbjóð).
By
Anonymous, At
Friday, 10 February, 2006
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home