Við erum öll eins
Félagi minn og starfsfélagi frá Pakistan er búinn að bjóða okkur Ástu í mat á laugardaginn. Hann er sjálfur trúleysingi en konan hans er sunni muslimi. Þetta verður áreiðanlega fínt boð, konan hans ætlar að elda indverskan mat sem hún er víst algjör snillingur í.
Þegar ég hitti hann í dag sagði hann mér frá árlegri hátíð í Pakistan og sjálfsagt víðar þar sem Islam er aðaltrúin. Þessa hátíð ber venjulega upp í kringum jól eða áramót, það fer eftir tunglganginum. Það er hefð á þessari hátíð að hver fjölskylda slátrar dýri, getur verið t.d. geit eða kýr. Áður en dýrið er drepið er farið með bænir og það síðan skorið á háls á ákveðinn hátt (halal). Þetta er venjulega gert fyrir utan hvert heimili þannig að blóðstraumurinn rennur út á götu og sameinast litlum blóðlækjum frá öðrum húsum. Þetta skapar augljóslega ákveðið hollustuvandamál og lyktin er víst ekki heldur til að hrópa húrra fyrir.
Samkvæmt trúnni þá verður sá sem drepur skepnuna líka að verka hana að öllu leiti, þ.e. búa til steikur og annað úr dýrinu. Þetta er ekki á allra færi og því pantar fólk slátrara með löngum fyrirvara sem kemur síðan í heimsókn á fyrirfram ákveðnum tíma og slátrar dýrinu með viðhöfn, verkar það og síðan er hluta af kjötinu úthlutað til fátækra. Þetta er víst heljarinnar business hjá slátrurunum. Það sem mér finnst samt athyglisverðast er að með tímanum hefur þetta þróast á þann veg að nú þykir það flottast að drepa sem stærst dýr og fólk stefnir sér jafnvel í miklar skuldir til að geta keypt sem stærsta kú. Síðan ganga þeir heim til sín með gripinn, bera sig saman við nágrannana og finna til mikillar vellíðunar ef þeir eiga stærsta dýrið.
Já, ef það er ekki jeppi, þá er það bara eitthvað annað.

0 Comments:
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home