Sunnudagaskóli og fleira...
Ásta fór út að borða í Soho með starfsfélögum sínum á laugardaginn. Þetta reyndist mikil kvöl og pína. Hún sat við hliðina á þýskri tannlaeknafrú um fimmtugt. Önnur hver setning byrjaði svona: "Í Þýskalandi.....". Það var drepið á ýmsu áhugaverðu s.s. að ekki þyrfti að setja nema stórutána út á götu í Þýskalandi til að bílar stoppuðu fyrir gangandi vegfarendum. Einnig að Í Þýskalandi væru allir rosalega skipulagðir, fólk eignaðist ekki börn fyrr en það væri fullmenntað og ætti stórt hús. Já, þeir kunna að halda uppi stemmningunni á laugardagskvöldum í Þýskalandi.
Á meðan Ásta þjáðist í matarboðinu tók ég til heima, bakaði pönnukökur og hafði heitt kakó tilbúið þegar hún kom heim kl. 4 um nóttina með næturbusinum. Skuggaleg áminning þess að testósterónframleiðsla mín fer sennilega minnkandi með árunum og ég enda sennilega sem kona eftir 30 til 40 ár.
Á sunnudaginn fórum við með Óðinn í íslenskuskólann í íslenska sendiráðinu og fórum þar næst í sunnudagaskóla í þýsku kirkjunni skammt frá Harrod´s. Það var ljómandi fínt alltaf gaman að hitta aðra Íslendinga. Ég hitti t.d. gamlan skólafélaga úr MR sem ég hafði ekki hitt í 12 ár, við höfðum hvorugir breyst mikið, nema hvað við vorum báðir ívið unglegri, grennri og myndarlegri en þegar við hittumst síðast. Merkilegt hvað aldurinn fer vel með sumt fólk.
Fórum síðan í labbitúr í Hyde Park, sem er sérlega fallegur á þessu árstíma. Kalli gaf öndunum laufblöð og gæsaskít að borða og hræddi líftóruna úr dúfunum. Hann gerði líka heiðarlega tilraun til að elta íkorna upp í tré en ef það á einhvern tímann að takast verður hann að megra sig pínulítið, hann rétt nær fram fyrir bumbuna á sér með höndunum litli kúturinn.
Það er annars búið að vera ansi kalt hér undanfarið. Ásta fór meira segja út í búð og keypti grátt föðurland fyrir Óðinn. Sem betur fer sýndi hún klinkunni sinni föðurlandið því það reyndist í raun vera gráar sokkabuxur ætlaðar ungum stúlkum og hluti af skólabúningi. Henni var ráðlagt að senda Óðinn ekki í skólann í þessu, honum yrði örugglega strítt.
Ég fór síðan í stólinn til Ástu í dag. Var með tvær holur því Ásta kaupir svo mikið nammi og burstar ekki nógu vel í mér tennurnar. Ásta gerði við aðra holuna og bauðst síðan til að lýsa á mér tennurnar sem ég þáði með þökkum. Hún setti síðan upp í mig einhvers konar tæki sem heldur munninum opnum og tungunni kyrri og undirbjó lýsinguna. Síðan bað hún arabískan kventannlækni með slæðu um að framkvæma sjálft verkið. Sú hafði aldrei gert þetta áður og þurfti að æfa sig. Hún spurði mig að sjálfsögðu hvort það væri ekki allt í lagi. Ég sagði: uuuuu...Það var tekið sem samþykki og Ásta yfirgaf stofuna.
kv Kalli

3 Comments:
Góð sagan af ullarbrókinni sem Ásta keypti. Minnir á Hermóð Gvuðraðarson sem var fyrsti ábúandi að Yztafelli í Kinn í Þingeyjarsýslu á 19. öld. Hann átti hvorki værðarvoð né brók en íklæddist sjali við störf. Þetta sjal var reyndar bróderað með Amager-bróderingu og þótti afar kvenlegt. Uppskar Hermóður allmikla stríðni af sveitungum og var hans getið í bók um íslenska fyndni fyrir vikið.
Kv. Hallgrímur
By
Anonymous, At
Saturday, 26 November, 2005
Jú jú mikið rétt hjá þýsku konunni. Umferð til fyrirmyndar, sjúklega stundvísir, sparsamir, skipulagðir, engin óvissa á þeim bænum. Hva, Ásta mín ég hélt að þú værir í góðri æfingu í svona "ich liebe Deutchland" samræðum. Ég held að ég og Högni hafi haldið sömu ræðu þegar við futtum frá Þýskalandi. Man sérstaklega eftir því þegar við mættum í partý sem að átti að byrja klukkan 19,00.
Við vildum alls ekki vera þau fyrstu sem að mættu á staðinn og því ákváðum við að 19.15 væri sennilega góður tími til að vera hvorki fyrstur né síðastur. Klukkan 19.15 þegar við mættum á staðinn þá voru ALLIR komnir og voru farnir að undrast hvar við værum eiginlega. Sem sagt sjúklega stundvísir. Ég hugsa að ég hefði skemmt mér konunglega við hliðina á þessari bráðskemmtilegu tannlæknafrú.
Kv, Fanney
By
Anonymous, At
Monday, 28 November, 2005

Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home