Á meðan ég man...
Ef einhver hefur áhuga þá voru þetta stöðvarnar á verklega prófinu:
1. Meta mann með brjóstverk sem vill fara heim gegn ráðlegginga lækna. Hann var með sögu um þunglyndi og geðrofseinkenni. Verkefnið var að segja af hverju það ætti að halda honum á spítala gegn sínum vilja. Vandamálið fyrir mig var að mér fannst hann geta farið heim heim því hann skyldi vel hvaða áhættu hann væri að taka. Hann var ekki þunglyndur eða með geðrofseinkenni.
2. Segja sérfræðingnum á bakvakt hvað maður vildi gera við manninn á stöðinni á undan og af hverju. Þarna sátum við hlið við hlið og aðeins lítill þunnur veggur skildi okkur að og við töluðum saman símleiðis. Ég vildi bara senda hann heim og hann virtist bara sáttur við það.
3. Meta mann með minnistruflanir. Notaði Mini Mental State Examination. Var mjög stressaður og gat ekki munað eitt atriðið þrátt fyrir að ég hefði mínútu aflögu.
4. Útskýra samtalsmeðferð við Agoraphobiu fyrir ungri konu.
5. Gera áhættumat á ungum manni með geðrofseinkenni sem hafði verið lagður inn gegn sínum vilja.
6. Hvíldarstöð. Sat í 7 mínútur og hugsaði um hverju ég hafði gleymt.
7. Fá fram geðrofseinkenni hjá manni á bráðmóttöku sem kom þangað í fylgd lögreglu.
8. Fá fram sögu og geðrofseinkenni sjá gamalli konu sem fannst hún ofsótt af nágrönnum sínum.
9. Geðskoðun á þunglyndri konu. Hún var í geðrofsástandi. Taldi sig vera dána og ætlaði að kasta sér á bálköst sem hún hafði gert í garðinum heima. Ég var ekki alveg nógu hress með það.
10. Meta konu með kvíðaröskun.
11. Meta mann með áfengisvandamál, ein flaska af vodka á dag takk fyrir.
12. Ræða við ættingja manns með dementiu. Meta áhættuþætti.
13. Lokastöðin. Gera taugaskoðun á neðri útlimum ungrar konu sem taldi sig ekki getað gengið. Gleymdi að biðja um siðgæðisvörð (chaperon), fatal mistök. Til að gera illt vera ákvað ég í fyrsta sinn á æfinni að athuga styrk INNRI lærvöðva og gekk bara nokkuð rösklega til verks þegar ég tróð hægri hendinni nánast upp í klofið á konunni. Mér varð litið eitt augnablik á prófdómarann og augun stóðu nánast á stilkum á hann skráði eitthvað hjá sér (sjálfsagt "varasamur læknir, getur ekki einu sinni hamið kenndir sínar í miðju prófi"). Ég hélt að þessi stöð hefði gert útslagið. Ég var nýbúinn að lesa nýja bók um líkamsskoðun og ætlaði aldeilis að brillera. Lærdómur: aldrei gera neitt í fyrsta sinn í prófi.

0 Comments:
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home