Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Tuesday, September 06, 2005

Aftur í gang

Fór í vinnuna í morgun, munaði 30 sekúndum að ég missti af lestinni. Vélin sem selur miðana vildi ekki samþykkja glænýja peningaseðla úr hraðbankanum heldur gubbaði þeim jafnóðum úúr sér. Ég þurfti því að velja langa röð þar sem starfsmaður afgreiddi handvirkt miða á snigilshraða, gat alveg fundið hvernig stresslevelinn hækkaði um nokkur þúsund prósent þennan stutta tíma sem það var að ráðast hvort ég næði lestinni minni.

Las "Minningar Geishu" á leiðinni, er langt komin með bókina, alveg frábær, þetta er morgunkonfektið mitt sem ég fékk á 3 pund í WHS ekki alls fyrir löngu.

Óðinn var rosa góður í morgun, klæddi sig, borðaði morgunmat og burstaði tennurnar óumbeðinn, OK ekki alveg en hann var samt rosa góður. Ég leyfði honum að hlusta á rokkdisk í fartölvunni þegar hann vaknaði, einhvern sem fylgdi með slúðurtímariti um helgina. Honum finnst rosa sport að fá að nota heyrnatólin mín þegar hann er að læra, rosa einbeittur yfir stafsetningunni og skriftaræfingunum. Það mætti halda að hann væri að læra fyrir gamla landsprófið!! Ég er bara voða fegin að hann hefur eitthvað gaman að þessu. Hann var beðinn um að taka með sér þrjá hluti sem tengdust sumarfríinu hans og valdi hann einn íslenskan pening, eina íslenska lestrarbók og svo stein sem hann fann á Íslandi.

Eldaði kvöldmat í fyrsta skiptið í 4 daga. Er að reyna að finna Korma sósu úr krukku sem er jafn góð og sú sem þeir nota á veitingastaðnum í bænum. Hefur ekki tekist enn.

Fórum svo öll í Norman Park eftir kvöldmat, Óðni er alltaf að fara fram á hjólinu, Karl Einar er meira í því að hlaupa á eftir hundunum og horfa á flugvélarnar. Sérstaklega fallegur dagur í dag.

Kalli er að fara að heimsækja eitthvað hræðilegt fangelsi á morgun þar sem þeir allra verstu eru hýstir, frábært starf.....hvað á maður að segja? Have a lovely day darling...

Bæ í bili,
Á.

0 Comments:

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home