Nýtt skólaár hefst

Í dag var stór dagur, Óðinn hóf nám í 2. bekk í Pickhurst Infant School. Ég verð nú að segja að það var rosalega mikill munur fyrir hann að byrja núna miðað við fyrir ári síðan. Fyrir ári mætti hann fyrsta daginn, vopnaður orðunum yes, no og toilet en núna hljóp hann inn á skólalóðina rosa spenntur og var strax umvafinn fullt af krökkum spyrjandi "Hi, how was your holiday Odinn?"
Fyrsta daginn voru þau látinn skrifa litla ritgerð um "My favorite day on my Holiday" og kennd rétt notkun orðanna "because" og "went".
Karl Einar var mjög reiður yfir því að fá ekki að fara í skólann líka, öskraði hátt þegar honum var meinaður aðgangur. Hann þarf víst að vera 2 + 3/4 ára til að byrja í Pickhurst Squirrel School sem er svona vísir að leikskóla við hliðina á Pickhurst Infant School sem Óðinn er í.
Við erum öll að ná heilsu, matarlystin er að koma aftur og náði ég að borða 3 tekex í dag og smá mjólk með Nesquick. Saknaði allt í einu gula Cheeriosins+rauða Síríussúkkulaðisins á Íslandi mjög mikið, verð endilega að pína einhvern heima til að senda mér það við tækifæri.
Kalli byrjaði að lesa aftur í dag, prófið hans er 13. sep og hafði hann ætlað að nota síðustu daga í lestur fyrir það en eyddi þeim svo bara í gubbupest. Alveg frábært.
Óðinn fékk allt í einu gríðarlegan áhuga á gömlu frímerkjasafni sem Kalli á, fannst þetta rosalega merkilegt áhugamál, að frelsa frímerki af umslagi með vatni, þurrka þau og raða inn í flotta bók. Set hér með frímerkjabók á jólagjafalistann hans.
Ætlaði í ræktina í dag en hafði ENGA krafta til þess. Fannst nógu hrkalega erfitt að labba út og inn í bil, var vel sveitt eftir þá áreynslu. Ætla samt í vinnunna á morgun, enga leti takk fyrir.
Heyrumst á morgun,
Kv. Á

3 Comments:
This comment has been removed by a blog administrator.
By
Anonymous, At
Monday, 05 September, 2005
This comment has been removed by a blog administrator.
By
Anonymous, At
Monday, 05 September, 2005
This comment has been removed by a blog administrator.
By
Anonymous, At
Monday, 05 September, 2005
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home