Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Sunday, September 11, 2005

Eitt og annað

Ásta fór til Windsor á laugardaginn og hitti Tinnu vinkonu og fjölskyldu. Tilefnið var í og með að skoða nýfædda barnið. Áttu góðan dag á fallegum stað. Windsor er staður sem vert er að skoða. Þar hefur Drottningin aðsetur og þar skammt frá er Eton, mesti snobbskóli Englands og þótt víðar væri leitað. Thames rennur þarna í gegn og það er gaman að sigla upp ána á bát í rólegheitum, mikil fegurð og kyrrð og ró.
Þegar Ásta kom heim voru þrumur og eldingar og rigndi eins og hellt væri úr fötu. Hún ákvað samt að skreppa út í búð. Rétt eftir að hún var farin áttaði hún sig á því að hún hafði gleymt lyklunum og sneri við. Hún lagði bílnum heima, en gleymdi að setja hann í handbremslu og hafði hann auk þess í bakkgír - ekki gott þegar bílastæðið hallar. Þegar hún kom út aftur var bíllinn í bílastæði nágrannans og hafði kysst bílinn hans á stuðarann með afturljósinu sem brotnaði. Það er víst tvö - tvö núna. Ég get lítið sagt, búinn að klessa bílinn einu sinni í Wales og keyra utan í vegkant þegar við vorum að þræða fáránlegar götur í Bath.
Annar gengur allt sinn vanagang. Það eina sem veldur mér áhyggjum er að ég er farinn að horfa á krikket. Núna er "æsispennandi" leikur á milli Englands og Ástralíu. Leikurinn tekur 5 (fimm) daga, frá morgni til kvölds! Ég er smám saman að skilja reglurnar.
kv Kalli

0 Comments:

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home