Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Sunday, September 04, 2005

Upprisan

Ég lofaði börnunum mörgu í gær þegar ég var í hálfgerðu coma, gerði allt til að fá frið. Í dag var svo farið að rukka múturnar.
"Mamma þú lofaðir að fara í sund í dag!" hljómaði klukkan hálf sjö í morgun...HA sund? Er ekki í lagi heima hjá þér? "Svo ætlaðir þú að fara niður í bæ og leyfa okkur Kalli litla að fara í litla tívólíið og kaupa ís" Díses, hvað var ég að hugsa?

Þið vitið ekki hvað er mikið mál að fara í sund hérna. Í fyrsta lagi má enginn sjást nakinn í sturtuklefunum, enda eru þeir allir lokaðir. Það er samt meira en að segja það að fara í sund með tvo drengi og reyna að passa upp á að enginn sjái þeirra allra helgasta. Í alvörunni þá eru Bretar alveg HRIKALEGAR pempíur.
Ég hef bara aldrei séð nakta konu í búningsklefunum í líkamsræktinni hér. Svolítið ólíkt Íslandi þar sem litlir krakkar hlaupa um búningsklefana, sumir pissa jafnvel á sturtugólfið á meðan mömmurnar eða pabbarnir elta á Evuklæðunum.

Það er ennþá svo heitt hérna, 29 gráður í dag, hef varla farið í jakka frá því í mars. Við Kalli fórum með börnin í stóran garð eftir hádegi, rosa fínn staður, hægt að labba risa hring, rosa fínt að leyfa Óðni að æfa sig að hjóla. Hann er orðinn bara fínn, þarf bara að æfa sig að bremsa og taka af stað. Miðjuferlið er sem sagt OK.

Fór svo og keypti skólaföt á drenginn, borgaði 20 pund fyrir 2 buxur, 2 skyrtur og 10 sokka. Bísna vel sloppið fannst mér. Fínt að sleppa vel þar því að næstu helgi byrjar hann á rándýru tennisnámskeiði þar sem allar græjur þurfa að vera tipp topp.

0 Comments:

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home