Frábær laugardagur

Vaknaði í morgun með alveg ferlega ógleði, komst varla út úr rúminu. Ég hafði ætlað að fara að heimsækja Tinnu vinkonu og nýju prinsessuna hennar og leyfa strákunum að fara í Legoland.
Staulaðist niður, Karl Einar er yfirleitt mjög strangur, rekur upp þessi ótrúlegu óperuhljóð ef ég dirfist að fara lengra frá honum en svona 10-15 cm. Hann var ekki ánægður þegar ég þurfti að fara að gubba, lamdi óþolinmóður á hurðina og öskraði grimmt. Engin miskunn þar á bæ.
Ég varð nú að segja að það er ekkert smá erfitt að vera einn í útlöndum veikur og þurfa samt að sinna börnunum. Maður vill helst bara hringja í nánustu ættingja og senda þá með fyrstu vél til að geta sofið óáreittur í meira en 2 klst. Við Kalli skiptumst á að sinna börnunum, Óðinn fékk að horfa ótakmarkað á teiknimyndir (horfði tvisvar á "Besta jólagjöfin" sem er jólamynd), Kalli litli fékk að borða jógúrt með súkkulaðikúlum sjálfur (þið vitið ekki hvernig eldhúsið og hann sjálfur lítur út á eftir)
Eftir að hafa ælt úr okkur allt vit skröngluðumst (er það íslenska?) við í mini göngutúr út í búð svona til að kaupa helstu nauðsynjar. Mér leið eins og dópista, þurfti að setjast á gangstétt og hvíla mig tvisvar til að gubba ekki á götuna. Þurfti svo ENDILEGA að hitta mestu snobbmömmuna í skólanum hans Óðins í búðinni, sennilega nýbúin að fara í Spray-tan og kaupa sér föt í Karen Millen. Hún horfði einkennilega á mig, hefur sennilega verið að velta fyrir sér hvort hún ætti að tilkynna mig til barnayfirvalda í skólanum.
Nú er komið kvöld, held að ég sé hætt að æla, drengirnir sofnaðir. Er að lesa Elsku Míó minn fyrir Óðinn núna, einn kafla á hverju kvöldi, Karl Einar vill helst rífa bókina á meðan. Var í alvörunni að velta fyrir mér að nota lestarferðina á morgnana til að lesa bókina inn á MP3 og leyfa honum svo að hlusta á upptökuna á kvöldin óáreittur. Ég held að ég sé búin að fatta hvernig eigi að setja myndir hérna inn, best að setja eina prufumynd.

0 Comments:
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home