Pre-spring
Ég er búin að búa til nýja árstíð. Þessi árstíð nær yfir tvo mánuði;mars og apríl. Á þessum tíma er enn vetur, ekki komið vor en hins vegar getur maður verið viss um að falleg birta baði bæinn frá um átta á morgnana og fram að kvöldmat.
Hitastig skiptir ekki máli, stundum snjóar í pre-spring en stundum ekki.
Við áttum ljómandi góðan sunnudag, Kalli er mikill aðdáandi Silfur Egils með kaffibolla, hann er alltaf á eftir hádegi á sunnudögum, alveg tilvalið að fara í smá búðarráp á meðan. Tók svo seinnipartssprett, 20 K, í yndislegu vetrarveðri, algjöru logni. Mikið af túristum með skíði á bílþakinu að fá sér Brynju ís eftir sennilega fínan dag í Hlíðarfjalli.
Kalli fór með Jr. á meðan í Jólasveinabrekku í nokkrar salibunuferðir en elduðu svo svínalundir með brúnuðum kartöflum og rauðkáli handa mér, bara eins og jólin væru komin aftur þegar ég var búin að hlaupa.
Nú fer að styttast í aðalsprettinn, rétt rúmur mánuður í stóra hringinn, er bara spennt.
Kv. Ásta

2 Comments:
Hlakka svo mikið til að hitta þig í sumar.
Mundu að taka myndir eftir STÓRA hringinn.
Þú ert flottust.
By
Fnatur, At
Wednesday, 05 March, 2008
Vá eru 20 km hlaup bara orðin dagleg iðja, verð að fara að herða mig upp og setja aftur á mig hlaupaskóna svo ég geti einhvern tíma náð að hlaupa með þér, ekki bara á eftir þér.
By
Berglind Rós Magnúsdóttir, At
Friday, 21 March, 2008
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home