Byrjað aftur-losað um bloggstífluna

Finn fyrir því eftir að hafa verið tölvulaus í 6 vikur að það þarf að byggja upp þol að sitja við og browsa svona svipað og þegar maður hefur ekki farið lengi út að hlaupa. Bæði eru fingurnir stirðir eftir að hafa pikkað bara nokkrar línur og svo er líka samviskubitið yfir "tímasóuninn" (mjög umdeilt) miklu fljótari að hrannast upp. Entist 5 mín í fyrstu netskoðun.
Það var mikil hátíð eftir að hafa tengt tölvuna. Ég var í alvörunni farin að fitja upp á peysur eins og í gamla daga til að drepa tímann á kvöldin (prehistoric time fyrir tíma netsins) og líka skoða bækur. Imbinn fékk þó litla athygli.
Í stuttu máli er ekkert að frétta af okkur síðan síðast. Erum samt búin að fá okkur tvær kanínur. Þær eru báðar kerlingar. Önnur er loðin og ljós og heitir Tobbi, en hin er snögghærð og svört og heitir Lubbi. Þær búa í litlu húsi úti í garði og geta spókað sig um í búri sem er áfast. Þær eru enn á lífi þrátt fyrir kuldakastið undanfarið. Við getum nú staðfest að kanínur lifa af 3 gráðu hitastig næturlangt og munum láta vita ef það met verður slegið. Lubbi og Tobbi fá aldrei að fara út úr búrinu. Lubbi slapp samt um daginn en fór hvergi heldur kom hoppandi af gleði þegar komið var að næsta matartíma. Lubbi er ekki með stóran heila, en samt stærri heila en Tobbi sem áttaði sig ekki á því að búrið var opið. Lubbi og Tobbi eru alltaf glaðar og finnst gott að borða. Kalli og Óðinn hafa gaman að Lubba og Tobba. Lubbi er dálítil subba og er alltaf að koma Tobba í bobba.

4 Comments:
Lubbi og Tobbi...góð stelpunöfn. Já þessi dýr ættu að lifa af mjög kalda vetur. Allavegna er villt sprelllifandi kanína sem er í garðinum okkar af og til og það getur orðið ansi kalt hér á veturna. Mikið er búrið fínt. Smíðaði Kalli það?
Hver ætlar síðan að passa Tubba og Lobba þegar þið farið til Orlando eftir 4 vikur? ;)
By
Fnatur, At
Tuesday, 21 November, 2006
Jú hann Kalli minn smíðaði búrið, Lubba og Tobbi verða í´góðu yfirlæti hjá okkur um jólin hjá vinum okkar hér í nágrenninu.
Ásta
By
Bromley, At
Tuesday, 21 November, 2006
Til hamingju með nýju fjölskyldumeðlimina já og ég þekki það að eiga kanínu og er búin að láta reyna á hvað þær þola mikin kulda....
Gott að fá ykkur í samband aftur og sjá að þið eruð lífs en ekki liðin, Kalli minn þú ert með eindæmum duglegur að ríma;-)
Eva
By
Anonymous, At
Wednesday, 22 November, 2006
Gaman að heyra að menn reyni að halda við handavinnukunnáttunni og einbeita sér vonandi að þjóðlegum lopapeysumynstrum við prjónaskapinn. Spurning hvort að ekki hefði verið ráðlegt að vera með angórakanínur og nýta lagðinn af þeim við prjónaskapinn. Einnig væri hægt að hafa þær til manneldis enda hinn ágætis matur eins og þið mundið e.t.v. frá kanínuátinu í sumar. Þær kanínur voru "road kill" en þessar heimaræktaðar. Ég fæ vatn í munnin þegar ég sé myndina sem fylgir blogginu.
En að öðru, húsdýrum til manneldis reyndar. Ég fékk tár í augun þegar ég sá myndirnar af Bush í gærdag þegar hann, að gömlum sið, náðaði kalkún í beinni útsendingu í tengslum við þakkargjörðina í USA (þar sem Guð á heima). Mikill maður Bush, sem gerir greinarmun á sakamönnum og kalkúnum þegar kemur að því að taka sér það vald að ákveða hver skal lifa og hver skal deyja. Enda alinn upp í bíblíubeltinu, þar sem gáfnaljósin og hinir vammlausu búa.
Einar, pabbi.
By
Anonymous, At
Friday, 24 November, 2006
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home