Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Thursday, September 07, 2006

Loksins....

Rúmlega tvö ár í Bretlandi, 800 dagar. Hvern einasta dag hef ég beðið við símann og vonað. Vonin ein hefur haldið í mér lífinu. Hvenær kemur að mér? Það eru allir aðrir búnir að fara. Og þegar ég er nánast búinn að gefa upp alla von opna ég tölvupóstinn minn og viti menn: Það er komið að mér. Það er búið að bjóða okkur Ástu í íslenska sendiráðið til að eiga þar góða kvöldstund með sjálfum sendiherranum. Já, þetta er sannarlega dásamlegt land og hvergi betra að fara með fjölskylduna en í Lególand, sérstaklega þegar það rignir. Að ekki sé minnst þetta ótrúlega góða fyrirtæki Ntl world, sem hreinlega veit fyrirfram hvað maður vill og leggja jafnvel kapal bara af því að þeir vita sem er að maður gleymdi að biðja um að hann yrði tengdur. Og lætur síðan mann í Ástralíu borga fyrir allt heila klabbið, ha ha ha. Þetta eru algjörir snillingar. Ó mitt kæra Bretland, hvernig gat ég nokkurn tímann efast!
kv Kalli

9 Comments:

  • Halló, mér líður mun betur að vita af þér líka svona hressum og jákvæðum, það liggur við að maður óttist að þetta sé tilgerð ein...
    EBE

    By Anonymous Anonymous, At Friday, 08 September, 2006  

  • Eruð þið ekki að grínast með sendiherraboðið?
    Í hverju ætlið þið að vera?.......ekkert smá spennó mhúahahahahahahaha.

    By Blogger Fnatur, At Friday, 08 September, 2006  

  • Nei, vina mín. Þetta er sko ekkert grín. Við förum þann 28. september. Þetta byrjar á aðalfundi FÍLÍB (félag íslenskra lækna í Bretlandi) og síðan er móttaka í sendiráðinu á eftir. Ásta kemur með sem læknisfrú;)

    By Blogger Bromley, At Friday, 08 September, 2006  

  • FÍLÍB það er ansi close to FÍFL og jafnvel hægt að bæta B-i við í endann FÍFLB mhúahahahahaha er ég ekki fyndin? Annars vfildi ég bara biðjast afsökunnar á því að hafa ekki nennt að tala við þið í 5 mín í gær þegar ég hringdi í Ástu. Mér leið svo assssk..... illa og átti eftir aqð taka verkjalyf. Hlakka til að spjalla næst mhúahahahaha.

    Þið verðið nú að taka svona klassíska "hand shake" mynd af ykkur og sendiherranum.

    By Blogger Fnatur, At Friday, 08 September, 2006  

  • Til hamingju krakkar.
    Ég vona samt að þið ofmetnist ekki af þessu boði og gleymið ekki uppruna ykkar. Nokkur ráð fyrir borðhaldið:

    # 1 Gaffallinn í vinstri, hnífurinn í hægri.

    # 2 Ekki ropa né smjatta

    # 3 Vera sammála diplomötunum í skoðunum. "Einmitt það sem ég var að hugsa, óendanlega sammála."

    # 4 Muna að þakka fyrir sig. "Þetta var allt mjög ánægjulegt. Reyndar ógleymanlegt"

    A.t.h.Þetta er spurningin um að verða gjaldgengur, komast á listann, til frambúðar. Í því felst óendanleg ánægja og tækifæri til að segja sögur af því hvernig þið "fína fólkið" skemttið ykkur. Auk þess er þetta ávísun á tækifæri í framtíðinni. Það skiptir máli að þekkja rétta fólkið. Sjáið hvernig komið er fyrir mér sem þekki einungis sauðsvartan almúgan.

    Íslandi allt. Skál!

    Einar (óboðinn).

    By Anonymous Anonymous, At Monday, 11 September, 2006  

  • Halló Ásta, gaman að lesa bloggið ykkar, kíki alltf annað slagið á ykkur. Átti sjálf heima í Lewisham 2000-2001 vinur minn einn býr í Biggin Hill þannig ég fór reglulega í geng um Bromley og skil vel af hverju þið búið þar, verulega sætur bær í skotfæri frá London en býr samt yfir ákveðinni sveitarómantík

    kveðja frá mér og París til ykkar og Bromley
    Rósa

    By Blogger imyndum, At Monday, 11 September, 2006  

  • Þakka góð ráð. Það er alveg ómetanlegt að fá smá stuðning þegar maður er að stíga sín fyrstu spor með fína fólkinu. Ég bæti þessi tvímælalaust á listann minn, sem reyndar var ekki langur:
    #1 Ekki prumpa Kalli, hvað sem þú gerir í guðanna bænum ekki prumpa.

    kv Kalli

    By Blogger Bromley, At Monday, 11 September, 2006  

  • hey getur einhver sagt mér hver er sendiherra núna í london?
    kveðja, Ásta læknisfrú

    By Blogger Bromley, At Monday, 11 September, 2006  

  • hæhæ
    Til hamingju með þetta boð... Mér finnst nú reyndar ennþá merkilegra að það finnist félagskapur íslenskra lækna í UK!!! Þarf endilega að koma þessu af stað hérna í DK!!?!?!?!??! Þið verðið að segja mér hvernig þetta er/fer fram svo ég geti hermt eftir...

    Kv.Anna Björg

    By Anonymous Anonymous, At Tuesday, 12 September, 2006  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home