Hlaupandi Brekkusniglar (fluttir frá Bromley)

Tuesday, September 05, 2006

Ntl world er skítafyrirtæki

Við erum búin að vera í vandræðum með internetið í meira en ár. Annað slagið er því lokað án nokkurs fyrirvara svo við verðum að hringja og kvarta. Þegar þetta kom fyrir á síðasta ári var okkur tjáð að við skulduðum marga mánuði fyrir internið sem var illskiljanlegt því við höfðum borgað fyrir símann og internetið í hverjum mánuði. Það kom síðan upp úr dúrnum að ntl síminn og ntl internetið er sitthvor deildin í sama fyrirtæki. Símadeildin (SD) hafði alltaf fengið alla greiðsluna mánaðarlega en internetdeildin (ID)ekki svo mikið sem penny. Niðurstaðan var því sú að SD skuldaði okkur hátt í tvo hundruð pund, en við skulduðum ID álíka upphæð. Er þá ekki bara einfaldast að láta SD millifæra peningana yfir á ID? Nei, elsku kúturinn minn, það var ekki hægt. Við urðum að borga skuldina við ID og síðan voru peningarnir sem við áttum inni hjá SD smán saman notaðir til að greiða símareikningana næstu mánuðina. Þetta var allt gott að blessað. Svo fluttum við.
Ég sótti um að síminn yrði færður yfir á nýtt heimilisfang á heimasíðunni, enda var sagt að það væri einfaldast. Ég klikkaði við að færa bæði símann og netið, en klikkaði ekki við kapal því við höfðum engan. Þegar við fluttum inn virkaði allt, síminn og internetið bara eins og velsmurð vel. Við vorum reyndar að nota það á kostnað síðasta leigjanda jafnvel þótt við fundum bréf til hans í húsinu frá þessu frábæra fyrirtæki þar sem honum er tjáð að þeir sjái mikið eftir honum sem viðskiptavini en að hans ósk verði öllu lokað TVEIMUR VIKUM áður en við fluttum inn. Eftir dúk og disk kom "engineer" frá fyrirtækinu. Engineer hér er alveg örugglega ekki það sama og verkfræðingur á Íslandi, þetta eru meira eins og tæknimenn sem af frammistöðunni að dæma hafa sennilega farið á helgarnámskeið til að fá sína gráðu. Nema hvað, þessi mannfýla kom loksins, en fór án þess að gera nokkuð vegna þess að hann sagðist ekki vita hvað hann átti að gera. Hann hefur sjálfsagt verið fullkomlega ráðviltur:"Ég vinn hjá síma og internetfyrirtæki og hér er fólk sem er nýflutt. Af hverju er ég hér?! Ætli það sé eitthvað að eldavélinni, sturtunni eða er pumpan í tjörninni kannski biluð. Nei, við skulum ekki vera að tefla á tvær hættur, þetta er allt MJÖG ÓLJÓST". Vinsamlegast hringið sjálf aftur í þjónustuverið og pantið nýjan tíma. Einmitt.
Við pöntuðum nýjan tíma og vorum svo framhleypin að fara fram á að við yrðum látin vita hvenær viðrinið myndi líta við aftur, því að hann hafði komið algjörlega óvænt síðast og bara Guðs lukka að einhver var heima svo hann gæti komið við og gert ekki neitt.
Hann kom aftur eftir rúmlega viku og tengdi alls konar víra og tók eitthvað box í burtu en skildi annað eftir. Takk fyrir það, og tengdi jafnvel kapal án þess að við hefðum beðið um það enda er hægt að rukka fyrir það aukalega í hverjum mánuði.
Bara eitt vandamál. Síminn sem hafði virkað svo vel, virkaði ekki lengur og það kostaði ótal símtöl í þjónustuverið. Síðan hætti emailið að virka í síðustu viku. Af hverju? Jú, við höfðum nefnilega bara borgað símann mánuðum saman en ekki internetið. En af hverju gátum við þá notað netið? Konunni í þjónustuverinu fannst það alveg rosalega skrítið, enda stórskuldug við ID en ekki SD. Jú, internetið hafði ekki verið fært yfir á nýja heimilisfangið með símanum og við vorum því að nota netið á kostnað manns sem nú er fluttur til Ástralíu. Við borguðum náttúrulega bara. Þegar við fengum síðan emailið aftur hafði allt verið þurrkað út, allar addressur og ósvöruð email. Þetta er nú meira skítafyrirtækið.
kv Kalli

4 Comments:

  • Hæ hæ, það er nú meiri endalaus gleðin þarna hjá ykkur, það hlítur að bjarga þessu hjá ykkur hversu geðgóð þið eruð:-)

    By Anonymous Anonymous, At Wednesday, 06 September, 2006  

  • hæhæ
    Er þetta að ganga hjá Síma- og internetfyrirtækjum... erum að standa í samskonar stríði við Tele2 hérna í DK!! Ákváðum að færa okkur yfir til þeirra vegna þess að símtölin til útlanda eru ódýrari hjá þeim.... en það ætlar ekki að ganga þrautalaust... TDC (sem er ríkisfyrirtækið) tók okkur úr sambandi 25. ágúst en það "gleymdist" að tengja okkur aftur... og tæknimaðurinn getur ekki komið fyrr en 13. sept!!! Þið getið rétt ímyndað ykkur gleðina á heimilinu!!
    Er núna að "stelast" inn á net nágrannans.... meika hreinlega ekki að vera ekki í sambandi

    Vona að þið hafið það gott, er búin að vera á leiðinni að hringja... en sem sagt ekki hægt fyrr en eftir næstu viku!

    kv.
    Anna Björg

    By Anonymous Anonymous, At Wednesday, 06 September, 2006  

  • Við erum með heilan bunka af bréfaskriftum frá NTL og við höfum aldrei verið viðskiptavinir. Við sögðum 1x óvart að þau mættu senda okkur í pósti tilboð sem við myndur skoða. Næsta sem við vissum var að við fengum rukkun frá þeim því við vorum ekki heima þegar "engineer" kom til að tengja okkur. Þrátt fyrir margar símhringinar og loforð, persónuleg símanúmer og nöfn þá komu samt meiri rukkanir og dráttarvextir af því að við börguðum ekki heimsókn sem við báðum ekki um. Lalli fann um daginn hatursíðu um NTL sem heitir http://forums.ntlhell.co.uk/
    Aldrei aldrei eiga samskipti við það fyrirtæki

    kveðja Jóna Gréta

    By Blogger Íslendingur í Biggin Hill, At Wednesday, 06 September, 2006  

  • Arrrggg ömurlegt að lenda í svona fyrirtækjum. Það eru heldur betur nokkur svona fyrirtæki hérna.
    Varð gráhærð við að lesa bloggið.

    Samúðarkveðjur, Fnatz

    By Anonymous Anonymous, At Friday, 08 September, 2006  

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]



<< Home